Innihald Ber þú mig, þrá. Ljóð eftir Snæbjörn Einarsson. Fyrsta og eina bók höfundar.
Ber þú mig, þrá
Ber þú mig, þrá, sem hug minn heillar, heim, þar sem nam ég fyrsta vorsins óm. Þar vil ég dvelja, er lífs míns birtu bregður. - Bros þeirra ég man, sem mér gáfu fegurst blóm. Héðan, sem hug minn enginn, enginn skilur ætla ég burt og fylgja barnsins þrá, sem hreif mig heiman frá yndi og æskustöðvum, en aldrei gaf það, sem hjartað þráði að fá.
Þökk fyrir allt, sem yndi veitti, allt, sem ég fann og týndi í glaumsins borg. Mörgum mun reynast það einhver ávinningur að eiga kynni af lífsins dýpstu sorg. Ber þú mig, þrá, sem mér öllu ofar bendir, áleiðis heim, þó að fenni í öll mín spor, eitt á ég þó, sem öllum veginn greiðir: ástina til þín, mitt hlýja bernsku vor.
|