Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Skáldverk eftir íslenzka höfunda »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Ímynd Íslands # 88138
Ímynd Íslands # 88138
1.900 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Trésmíði í eilífðinni # 87660   [Kilja]
Gyrðir Elíasson

Trésmíði í eilífðinni # 87660
Our Price: 2.900 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak.
Product no.: #87660
   



Contents:
Trésmíði í eilífðinni - og fleiri sögur geymir úrval úr smásögum Gyrðis Elíassonar. Allt frá því að fyrsta smásagnasafn hans, Bréfbátarigningin, kom út árið 1988 hefur hann lagt sérstaka rækt við þetta ritform og hefur auðgað það með sínum sérstaka frásagnarhætti og fágaða stíl. Þótt sögurnar séu ólíkar eru þær allar gæddar þeim blæ sem jafnan einkennir verk Gyrðis.

í bókinni er safnað saman sögum frá tíu ára tímabili. Þær sýna þróunina í sagnagerð Gyrðis og ýmis blæbrigði hennar. Þetta eru sögur af söknuði eftir því horfna og dána og eftirsjá eftir því sem er á fallanda fæti. Sögur af hryllingi og ógn, sögur af mönnum með horn og konum með vængi, af spádómum og sýnum, af þungsinni og þrá. En ekki síst eru þetta sögur af gleði yfir töfrum lífsins og traustinu á að þau öfl sem vilja vinna því brautargengi séu betri en hin sem vilja gera heim okkar fátækari af furðum og sérkennum. Þetta eru sogur um þá von að trésmíðar, jafnt sem aðrar smíðar og raunar allt okkar líf, séu ekki aðeins bundnar við stund og stað - þær tilheyri eilífðinni. (Káputexti)

Horn

Meðan verið er að hita kaffið spjalla gömlu mennirnir um yngri mann sem fann hreindýrshorn í Loðmundarfirði og fór með þau suður og lét græða þau á sig og kom árið eftir til að búa í þorpinu hérna, með hornin upp úr höfðinu og spangir gleraugnanna kræktar aftur fyrir greinarnar. Hann settist að í þessu kauptúni og kom sér upp litlum bústofni og drakk með hrútnum sínum hvenær sem færi gafst og ferðir féllu til Seyðisfjarðar. Hrúturinn var ónotalegur með víni og stangaði fólk sem vildi líta inn hjá manninum með hornin. En hann hristi sín horn góðlátlega og brosti að illskunni í hrútnum, hastaði mildilega á hann og hélt svo áfram að drekka, sótti glas handa gestinum þegar skepnan hafði róast, og horn glóðu við himin sjálfan þegar hann kom að dyrum fjárhúskofans með glasið. Svo laut hann fram til að komast inn um dyrnar, og hornin breyttust í loftnetsstengur.
Hann vildi ekki ræða um ágræðsluna, eyddi talinu, fálmaði upp í gleraugun, tók þau gjarnan ofan og fægði, blés og gerði móðu, fægði meira, sagði svo kannski: ,,Það er þægilegt að ná suður-evrópsku stöðvunum í útvarpinu meðan þokan grúfir yfir hér."
Um tíma átti hann nokkrar hænur, en þær urðu skammlífar; komust í gersull eftir að hann var farinn að brugga og hættur að bíða áfengisferða til Seyðisfjarðar. Hann hafði hellt botnfallinu út á grasflötina bak við húsið og hænurnar komu vappandi í glampandi sólskini og tóku að stinga niður goggum á þessum litla bletti. Um kvöldið átti hornamaðurinn engar hænur á lífi.



Product details:
Reykjavík. Mál og menning, 1998.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Trésmíði í eilífðinni # 87660
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce