Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Sigurður Ingjaldsson frá Balaskarði »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Nokkrar hugleiðingar um hina andlegu nekt vorra tíma # 86845
Nokkrar hugleiðingar um hina andlegu nekt vorra tíma # 86845
9.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði # 86801   [Innbundin]
Sigurður Ingjaldsson frá Balaskarði

Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði # 86801
Our Price: 9.500 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Góð eintök í góðu bandi.
Product no.: #86801
   



Contents:
Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði. Rituð af honum sjálfum.
Sigurður Ingjaldsson, rithöfundur frá Balaskarði, var fæddur að Ríp í Skagafirði 10.4. 1845.
Voru foreldrar hans Ingjaldur bóndi Þorsteinsson og kona hans Guðrún Runólfsdóttir Jakobssonar, er þá bjuggu á Ríp. Ingjaldur var sonur Engilráðar Sæmundsdóttur sem var laundóttir Sæmundar Þorleifssonar, bónda í Brimnesi og Enni í Viðvíkursveit. Faðir Ingjalds var Þorsteinn Ingjaldsson, bóndi og járn- og málmsmiður í Skagafirði, sonur Elínar Eggertsdóttur ríka Þorsteinssonar. Sex ára gamall fluttist Sigurður ásamt foreldrum sínum að Balaskarði í Laxárdal í Húnavatnssýslu.
Kona Sigurðar var Margrét Kristjánsdóttir, f. 18.12. 1831, d. 17.12. 1908 frá Enni í Refasveit. Fluttu þau hjón vestur um haf 1887 og settust snemma að í Gimli og bjuggu þar síðan. Þau áttu engin börn.
Þegar Margrét lést fór Sigurður að fást við ritstörf. Ástæðuna fyrir skrifunum sagði hann vera „lífsleiðindi sem að mér sóttu“. Hann ritaði ævisögu sína sem kom út í þrem bindum, það fyrsta árið 1913, og einnig Gísla þátt Brandssonar. Eru sögurnar fullar af fróðleik um ferðalög og daglegt líf alþýðumanna á seinni hluta 19. aldar. Í formála að annarri útgáfu ævisögu hans árið 1957 segir Freysteinn Gunnarsson: „Þótti sumum löndum hans vestra hann ganga óþarflega langt í því að lýsa kotungsskapnum hér heima á Íslandi. En það er einn höfuðkostur bókarinnar... Virðast þær lýsingar alveg sannar og ófegraðar.“
Sigurður stundaði mikið formennsku á Íslandi og farnaðist vel. Þegar hann flutti til Kanada hafði hann verið 38 vertíðir á sjó, þar af 28 sem formaður. Sigurður var einnig vel hagur á ýmiss konar smíði og lagði fyrir sig að búa til spæni og göngustafi sem þóttu miklar gersemar.
Sigurður andaðist á jóladag árið 1933, 88 ára að aldri.



Product details:
Reykjavík. Prentsmiðjan Gutenberg, 1913.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði # 86801
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce