Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Íslenzk og norræn fræði. »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Sögur úr Þúsund og einni nótt # 88573
Sögur úr Þúsund og einni nótt # 88573
39.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensens # 88341   [Forlagsband, kápa]
Ingi Sigurðsson

Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensens # 88341
Our Price: 2.900 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak.
Product no.: #88341
   



Contents:
Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensens.
Magnús fæddist á Leirá í Leirársveit, sonur Ólafs Stephensen stiftamtmanns og konu hans Sigríðar, dóttur Magnúsar Gíslasonar amtmanns. Hann ólst að mestu upp á Innra-Hólmi. Magnús varð stúdent utanskóla frá Hannesi Finnsyni biskupi 1779 og fór síðan í Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan lögfræðiprófi 1788.
Á námsárunum var hann sendur til Íslands á vegum danskra stjórnvalda til að rannsaka Skaftárelda og afleiðingar þeirra. Hann fór með skipi sem sigldi frá Kaupmannahöfn haustið 1783 en hraktist til Noregs. Þar dvaldist Magnús um veturinn hjá Þorkeli Fjeldsted etatsráði í góðu yfirlæti en þegar heim kom biðu hans skelfilegar upplifanir, eins og hann segir frá í sjálfsævisögubroti: „... húsfyllir dag eftir dag af dauðvona aumingjum, flúnum að norðan, austan og vestan, og uppflosningum, konum, börnum og gamalmennum til að leita sér líknar og saðnings, margir um seinan, því þeir deyðu þar og allsstaðar hrönnum saman af hungri og hungursóttum, pestnæmum sjúkleikum, er leiddu af eldgosinu, við óholt loft, langvinnan sult, eður nautn hor- og pestardauðra gamalla hrossa- og kindahræja“.
Magnús hlaut skjótan embættisframa að loknu prófi. Hann varð lögmaður norðan lands og austan 1789, síðan settur landfógeti og árið 1800 varð hann dómstjóri í Landsyfirrétti, sem þá var nýstofnaður. Hann þótti mildur í dómum og mannúðlegur. Hann gegndi líka stiftamtmannsstarfi um tíma, var ráðgjafi við dönsku hirðina og var eftir það titlaður konferensráð.
Magnús var að mörgu leyti frjálslyndur skynsemishyggjumaður sem vildi stuðla að framförum. Hann var alþjóðlegur í hugsun og gagnrýndi mjög heimóttarhátt landa sinna og vildi upplýsa þá og kynna þeim erlenda menningu og atvinnuhætti. Hann var einn öflugasti liðsmaður upplýsingarinnar á Íslandi og gekkst meðal annars fyrir stofnun Hins íslenska landsuppfræðingarfélags árið 1794. Tilgangur þess var upphaflega að festa kaup á Hrappseyjarprentsmiðju og var það gert og hún flutt að Leirárgörðum, í nábýli við Magnús. Fimm árum síðar var Hólaprentsmiðja sameinuð henni og mátti þá heita að Magnús réði einn yfir einu prentsmiðju landsins. Þótti sumum hann nokkuð ráðríkur.
Magnús gaf meðal annars út tvö tímarit, Minnisverð tíðindi, sem komu út 1796-1808 og var fréttatímarit sem flutti innlendar og erlendar fréttir og Klausturpóstinn, sem kom út 1818-1827 og flutti fréttir og greinar af ýmsu tagi. Hann gaf líka út ýmis fræðslurit, meðal annars um hagfræðileg, lögfræðileg og söguleg efni, svo og bækur um guðfræði, en umdeildust bóka hans var sálmabókin sem hann gaf út árið 1801 og var uppnefnd Leirgerður. Um hana var mikið rifist. Sálmarnir þóttu sumir illa ortir og svo var markmið Magnúsar að útrýma Kölska úr sálmabókinni og voru ekki allir sáttir við þá áherslubreytingu. Hann gaf líka út skáldskap af ýmsu tagi, bæði þýtt efni og frumsamið. Magnús var mikilvirkur rithöfundur en þótti ekki gott ljóðskáld.
Ein þeirra bóka sem Magnús gaf út var Einfalt matreiðsluvasakver fyrir heldri manna húsfreyjur, sem kom út undir nafni Mörtu Maríu Stephensen, konu Stefáns amtmanns, bróður hans, og er fyrsta íslenska matreiðslubókin. Í ævisögu sinni segir Magnús að hann hafi sjálfur skrifað bókina að mestu þegar hann var tepptur í Noregi veturinn 1783-1784 og þá væntanlega upp úr uppskriftabók frú Fjeldsted en þetta er þó allt óljóst og óvíst hvort þeirra á meiri þátt í bókinni.
Kona Magnúsar (g. 1788) var Guðrún Vigfúsdóttir Scheving, dóttir Vigfúsar Scheving sýslumanns á Víðivöllum í Skagafirði og Önnu Stefánsdóttur konu hans. Börn þeirra voru Ólafur Stephensen dómsmálaritari í Viðey og Þórunn kona Hannesar Stephensen prófasts á Ytra-Hólmi. Magnús og Guðrún bjuggu á Leirá, síðar á Innra-Hólmi og síðast í Viðey. Þar dó Magnús 1833.




Product details:
Reykjavík. Hið íslenska bókmenntafélag, 1996.

Reviews
Customers who bought this product also purchased
Kaupfjelag Eyfirðinga 1886-1926 # 58101
Kaupfjelag Eyfirðinga 1886-1926 # 58101
Bréf til Sólu # 88540
Bréf til Sólu # 88540
Sagnaskemmtun Íslendinga # 56487
Sagnaskemmtun Íslendinga # 56487

Notifications more
Notify me of updates to Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensens # 88341
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce