Minn aðgangur
|
Skoða körfu
|
Ganga frá pöntun
Ítarleit
Forsíða
»
Vörulisti
»
Jón Espólín
»
Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt!
Gamankvæði (Ísfirzk) # 88683
29.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband
Saga Jóns Espólíns hins fróða # 76626
[Innbundin]
Jón Espólín
Verð:
9.500 kr.
Afgreiðslutími:
1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál:
Íslenska
Ástand:
Gott eintak.
Vörunúmer:
#76626
Innihald
Saga Jóns Espólíns hins fróða, sýslumanns í Hegranesþingi. Rituð af sjálfum honum í dönsku máli, en Gísli Konráðsson færði hana á íslenzkt mál, jók hana og hélt henni fram.
Jón var fæddur á Espihóli í Eyjafirði og kenndi sig við þann bæ. Foreldrar hans voru Jón Jakobsson sýslumaður og kona hans Sigríður Stefánsdóttir. Jón lærði í heimaskóla hjá Jóni presti Jónssyni í Núpufelli og fór síðan til náms við Kaupmannahafnarháskóla.Hann var skipaður sýslumaður í Snæfellsnessýslu frá 19. september 1792. Hann tók við sýslunni seint í nóvember sama ár. Árið 1797 hafði hann sýsluskipti við Finn Jónsson sýslumann í Borgarfjarðarsýslu og var þar í fimm ár en þá skipti hann um sýslu við Jónas Scheving og fékk Skagafjarðarsýslu, þar sem hann var síðan sýslumaður til dauðadags. Hann bjó fyrst á Flugumýri í Blönduhlíð 1803–1806, síðan í Viðvík í Viðvíkursveit til 1822 og síðast á Frostastöðum í Blönduhlíð.
Jón hafði mikinn áhuga á sagnfræði og ættfræði frá unglingsárum og skrifaði mikið um þau efni. Annállinn Íslands Árbækur í sögu-formi, sem venjulega gengur undir nafninu Árbækur Espólíns, kom út í 12 bindum á árunum 1821–1855. Árbækurnar eru yfirlit yfir sögu Íslands frá því um 1262 til samtíma höfundarins, og eru beint framhald af Sturlungu. Einnig liggja eftir Espólín meiri ættfræðiupplýsingar en nokkurn annan mann frá fyrri tíð og við hann er kennt ættfræðiforritið Espólín. Sagt hefur verið um Jón að hann hafi skrifað óvenju góða íslensku á tíð þegar málfar embættismanna var æði dönskuskotið.
Samantekt Árbókanna var ótrúlegt afrek á sinni tíð, þegar litið er á þær aðstæður sem Jón Espólín starfaði við, og þær höfðu mikil áhrif, enda um langt skeið eina prentaða yfirlitið um sögu Íslands eftir 1262. Jón Espólín tók einnig saman fjöldamörg rit um mannkynssögu, einkum sögu fornaldar, en einnig sögu síðari alda. Langbarða sögur, Gota og Húna og þýðingarnar eftir Plútarkos eru sýnishorn af því safni.
Um bókina
Kaupmannahöfn. Sigurður Kristjánsson, 1895.
Tilkynningar
Látið mig vita um breytingar á:
Saga Jóns Espólíns hins fróða # 76626
Segðu vini frá
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir
Skrifa umsögn
Tungumál
24/01/2026
Bókin
©
bokin@simnet.is