{"product_id":"aevisaga-eyjasels-mora-90215","title":"Ævisaga Eyjasels-Móra # 90215","description":"\u003cp\u003eÆvisaga Eyjasels-Móra. Safnað, skráð og saman fært hefur Halldór Pétursson.\u003cbr\u003eGott eintak, forlagsband og kápa. Árituð f.h. Eyjasels-Móra af Halldóri Péturssyni.\u003cbr\u003eUm aldamótin 1800 flytur Hálfdan Hjörleifsson ásamt konu sinni og börnum frá Eyjaseli í Ketilstaði í Jökulsárhlíð, en Eyjasel var afbýli frá Ketilsstöðum. Faðir Hálfdans hafði búið á Ketilsstöðum en var fallin frá og Hálfdan tók við búi á Ketilsstöðum þar sem þeim hjónum búnaðist vel og voru talin til meiriháttar bændafólks.\u003cbr\u003eÁ Ketilstöðum bjó einnig fólk Hálfdáns og Guðlaugar Einarsdóttur konu hans, m.a. Ingibjörg systir Hálfdans vinsæl ung og myndarleg kona. Ingibjörg hafði farið 22 ára gömul til starfa í Hallgeirsstaði í sömu sveit til Brynjólfs Péturssonar læknis, sem þá var miðaldra ekkjumaður.\u003cbr\u003eBrynjólfur á að hafa farið á fjörurnar við Ingibjörgu, en í stuttu máli fór sú fjöruferð svo að Ingibjörg forðaði sér hið snarasta heim í Ketilsstaði. Er hún kom heim veiktist hún hastarlega innvortis og voru meðul fengin hjá Brynjólfi. Þegar Ingibjörg hafði tekið meðalið varð hún vitskert.\u003cbr\u003eAftur var leitað á náðir Brynjólfs með meðal til að lækna geðveikina. Þegar komið var með það meðalaglas frá Hallgeirsstöðum út í Ketilsstaði og það opnað steig upp úr því gufa sem fólki sýndist þéttast í mórauðan strák með skörðóttan barðastóran hatt og upp frá því hófst djöfulgangur sem á sér enga líka.\u003cbr\u003eSkepnur á Ketilsstöðum voru drepnar umvörpum á hroðalegan hátt, húsum riðið og þau brotin niður dag og nótt. Þóra, dóttir Hálfdans og Guðlaugar, fannst kyrkt í fjósinu sem var undir baðstofunni þegar fólk kom að eftir að hafa heyrt ópin í henni upp í baðstofu. En Þóra hafði farið niður í fjós til að hafa næði við að lesa í kverinu það sem hún þurfti að kunna fyrir fermingu. \u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53874630033736,"sku":null,"price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90215.jpg?v=1787230766","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/aevisaga-eyjasels-mora-90215","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}