{"product_id":"austan-elivoga-14696-11413","title":"Austan Elivoga # 14696","description":"Austan Elivoga. Gedichte von Böðvar Guðmundsson. Hier ist das erste Gedichtbuch von Böðvar erschienen.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eDalalæða\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún læðist frá sjónum inn dalinn á döggvotum skóm\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog dún sinn breiðir á holtin og grónar traðir\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebæjanna, hylur þá sjálfa einn eftir einn,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eógrynnishaf, sem hvergi fær dunað né sorfið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eströnd eða þangsker.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún þokast á brattann og fer\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþvalköldum álagahöndum um vörður og leiti,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvo drangurinn gengur úr berginu brúnaþungt tröll,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ebrekkur og hlíðar togna í svimandi hrap.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún villir smalann, er leitar sauða og sér\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esvartálfabörnin að leik fyrir opnum riðum,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog heyrir útburðinn væla, veit að í holti\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eviðsjáll melrakkinn þýtur nasvís og frár\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eá sömu slóðir til ánna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEða hún hrekur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eöndvert á brattann læki, hvítum fossi\u003cbr\u003e\u003cbr\u003estuggar úr gljúfrinu aftur upp fyrir brún.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinmanalegust allra jarðneskra vætta\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeigrar hún náttlangt þvert yfir víðar heiðar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog leitar í mónum löngu horfinna spora\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eliðinna manna,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehörfar fundlaus á braut\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eárla, en lætur lifandi grösum að drykk\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eliggja sólbrotin tár.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126858318152,"sku":"OSC-11413","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/bodvargudmundsson_austanelivoga.jpg?v=1754834823","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/austan-elivoga-14696-11413","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}