{"product_id":"biblia-thad-er-oll-heilog-ritning-89356","title":"Biblía, það er öll heilög ritning # 89356","description":"\u003cp\u003eBiblía, það er öll heilög ritning, út gefni að tilhlutun hins Íslenzka biblíufélags. \u003cbr\u003e6. útgáfa. (Rétt mun vera að þetta er 7. útgáfa Biblíunnar á íslenzku).\u003cbr\u003eReykjavíkurbiblía, 1859, er sjöunda heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku, prentuð í Reykjavík, í Prentsmiðju Íslands, sem þá var í eigu Einars Þórðarsonar. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ Reykjavíkurbiblíu er texti Viðeyjarbiblíu (1841) prentaður nánast óbreyttur. Þarna eru Apókrýfar bækur Gamla testamentisins prentaðar í síðasta sinn í íslenskum biblíum um langt skeið. Þær voru aftur teknar upp í Biblíu 21. aldar, sem kom út 2007.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMjög var til útgáfunnar vandað, bókin er í stærra broti en Viðeyjarbiblían, prentuð með gotnesku letri eins og allar fyrri biblíuútgáfur íslenskar, og er Reykjavíkurbiblían með því síðasta sem prentað var með því letri hér á landi. Er eins og menn hafi veigrað sér við að breyta þeirri hefð að prenta Biblíur með gotnesku letri, þó að latínuletur væri þá almennt notað á íslenskar bækur. \u003cbr\u003eReykjavíkurbiblían var gefin út í 2.000 eintökum.\u003cbr\u003eGott eintak \u003cstrong\u003eReykjavíkurbiblíunnar\u003c\/strong\u003e. Samtíma band.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52949733835080,"sku":null,"price":95000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89356.jpg?v=1776782541","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/biblia-thad-er-oll-heilog-ritning-89356","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}