{"product_id":"brefin-hennar-viktoriu-89290","title":"Bréfin hennar Viktoríu # 89290","description":"\u003cp\u003e Bréfin hennar Viktoríu. Inga Kristjánsdóttir tók saman og skráði.\u003cbr\u003eÍ byrjun síðustu aldar var stór og glaðvær systkinahópur að vaxa út grasi á Gýgjarhóli í Biskupstungum. Það var til þess tekið hvað Gýgarhólssystkinin voru mannvænleg, enda létu mörg þeirra snemma til sín taka þar í sveitinni í félags- og framfaramálum. Örlög þeirra urðu þó misjöfn, heilsuleysi og sjúkdómar hjuggu snemma skörð í þennan efnilega hóp og tvö systkinanna fluttust burt úr sveitinni, annað í fjarlægar heimsálfur.\u003cbr\u003eBréfin hennar Viktoríu rekja sögu þessara systkina allt frá því að fjölskyldan flutti búferlum að Gýgarhóli frá Þjórsárholti í Gnúpverjahreppi árið 1898. Tilviljun réði því að sendibréf sem fóru á milli systkinanna og vina þeirra hafa varðveist og er sagan rakin í gegnum þessi bréf, þótt einnig sé stuðst við fleiri heimildir. Auk þess að fylgja fjölskyldunni í gegnum gleði og sorgir, er bókin áhugaverð heimild um svitarbrag og áhugamál ungs fólks í uppsvetum Suðurlands fyrir um hundrað árum. \u003cbr\u003eHöfundurinn Inga Kristjánsdóttir er dóttir eins af systkinunum frá Gýgarhóli og ólst þar upp frá unga aldri. Hún er bókasafns- og upplýsingafræðingur að mennt og hefur einnig lagt stund á þjóðfræði og sagnfræði. (Káputexti).\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52908822856008,"sku":null,"price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89290.jpg?v=1776255701","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/brefin-hennar-viktoriu-89290","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}