{"product_id":"ekko-fra-tankens-fastland-6973-10145","title":"Ekko fra tankens fastland # 6973","description":"Ekko fra tankens fastland. Bjarni M. Gíslason.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ Eimreiðinni 46.árg. 2.hefti 1940. er fjallað um bók Bjarna M. Gíslasonar. Þar segir: - Höfundur kvæða þeirra á dönsku, er hér um ræðir, er\u003cbr\u003eungur íslendingur, sem gaf út árið 1933 ljóðasafnið Ég ýti úr vör, og\u003cbr\u003egaf það að ýmsu leyti góðar vonir um höf. sem skáld. Síðan hefur hann\u003cbr\u003efarið til Danmerkur og mun hafa fullan hug á því að verða rithöfundur\u003cbr\u003eá danska tungu. Gaf hann út árið 1937 bókina Giimt fra Nord með lýsingum á Islandi og íslenzkri menningu, og var hennar getið hér í Eim-\u003cbr\u003ereiðinni á sínum tíma (1939, 2. hefti). Og nú síðast er komið út eftir\u003cbr\u003ehann Ijóðasafn það, sem hér er gert að umtalsefni. Hefur því verið prýðilega tekið i dönskum blöðum, og er það að maklegleikum, þvi að höf.\u003cbr\u003eyrkir á lýtalausri dönsku falleg og stemningarík kvæði. Höf. tekur að\u003cbr\u003evísu ekki ennþá efnið þeim fastatökum listarinnar, sem nauðsynleg eru\u003cbr\u003etil að skapa hið frábæra í sinni röð, en öll meðferð hans lofar góðu um\u003cbr\u003eframtiðina. Hann yrkir mikið um ísland, sem er það „Tankens Fastland\" eða „meginland andans\", er um getur i nafni bókarinnar. Fallegt\u003cbr\u003ekvæði yrkir hann og um Danmörku. Yfirleitt bera kvæðin vott um viðkvæma og góða skáldsál, sem þráir fegurð og sannleika í lífi og Ijóðum. Vil ég að lokum óska þess, að þessum djarfhuga, unga Íslendingi megi vel farnast i „víking\" sinni meðal framandi þjóða.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJakob Jóh. Smári.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126910779720,"sku":"OSC-10145","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/bjarnimgislason_ekkofratankensfastland.jpg?v=1754836074","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/ekko-fra-tankens-fastland-6973-10145","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}