{"product_id":"erta-74737-54012","title":"Erta # 74737","description":"Erta. Skáldsaga eftir Diddu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003emánudagur\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog hvar er hún núna, helvítis hamingjan? einhvers staðar að glenna sig upp í grunlausa. flennan sú. hún er borgin, borgin er líkami, með allt sem þarf og rassgat og klof og útferð og blóð. frárennsli hennar er innan úr henni, þar sést allt sem vita þarf. og henni er hampað, og skrumið gerir hana vandræðalega. hún vill líka að það sé satt, að hún kenni til í æðahnútunum og þurrkblettunum. að henni finnist vont að vera sprengd og skorin, en hverjum er svo sem ekki sama. og í angistarkenndri höfnun drepur hún á rafmagninu sínu og ver einhverja álfahóla innan á sér. leggið ekki gangbrautir yfir geirvörtur hennar.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122946638152,"sku":"OSC-54012","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/60826.jpg?v=1754753547","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/erta-74737-54012","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}