{"product_id":"ithrottir-herlendis-i-althjodlegu-samhengi-91297","title":"Íþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi # 91297","description":"\u003cp\u003eÍþróttir hérlendis í alþjóðlegu samhengi. Eftir Dr. Ágúst Einarsson.\u003cbr\u003eÍ bókinni er sögu íþrótta lýst og sagt frá fjölda íþróttafólks, innlendu sem erlendu.\u003cbr\u003eÍþróttir hérlendis eru bornar saman við íþróttir í nágrannalöndunum.\u003cbr\u003eFjallað er um mikilvægi íþrótta fyrir börn og unglinga svo og fyrir eldri borgara en þeir byggðu upp íþróttahreyfinguna, stærstu fjöldasamtök Íslendinga.\u003cbr\u003eGreint er frá skipulagi íþrótta og tengslum við alþjóðavæðingu og heilbrigðismál en íþróttir hafa mikið forvarnargildi.\u003cbr\u003eSagt er frá mismunun og misnotkun í íþróttum, sem er mikil og mun meiri en fólk heldur.\u003cbr\u003eFjárhagsleg umsvif íþrótta eru greind og framlag íþróttageirans til landsframleiðslu er metið en slík greining hefur ekki verið gerð áður. Íþróttir eru mikilvægur þáttur í lífskjörum landsmanna.\u003cbr\u003eDr. Ágúst Einarsson er prófessor emeritus, fyrrverandi rektor og alþingismaður. Ágúst hefur skrifað fjölda bóka. Í bókarlok eru lagðar fram tólf tillögur til að efla íþróttir hérlendis en íþróttir verða ein mikilvægasta efnahagsaðgerð framtíðarinnar. Bókin er tæpar 300 bls. og Háskólinn á Bifröst gefur bókina út.\u003cbr\u003eBókin er tileinkuð eldri borgurum sem lögðu grunn að öflugu íþróttastarfi Íslendinga og frábærum árangri á erlendum vettvangi.\u003cbr\u003eEfni bókarinnar er sem hér segir: - Kafli 1: Umgjörð og söguleg þróun -- Kafli 2: Helstu íþróttagreinar hérlendis -- Kafli 3: Iðkun, áhorf, menntun og fjölmiðlun -- Kafli 4: Hugtök til skýringar og greiningar -- Kafli 5: Skipulag, þátttaka aldurshópa og heilbrigðismál -- Kafli 6: Alþjóðavæðing, stjórnmál, misnotkun og mismunun -- Kafli 7: Hagræn áhrif og framlag íþrótta til landsframleiðslu -- Kafli 8: Samantekt og tillögur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGott eintak, forlagsband. Áritað til eins helsta íþróttamanns þjóðarinnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":55027234111816,"sku":null,"price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91297.jpg?v=1795176394","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/ithrottir-herlendis-i-althjodlegu-samhengi-91297","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}