{"product_id":"jon-smann-ferjuma-83336-11980","title":"Jón Ósmann ferjumað # 83336","description":"Jón Ósmann ferjumaður. Kristmundur Bjarnason tók saman.\u003cbr\u003eJón fæddist árið 1862 á bænum Utanverðunesi í Hegranesi og var næstelstur fimm barna Magnúsar Árnason og Sigurbjargar Guðmundsdóttur.\u003cbr\u003eJón var talinn með fríðustu og karlmannlegustu mönnum sem Ísland hafði alið af sér. Margir höfðu á orði að hann minnti á hetjur og afreksmenn fornaldar; þá var Skarphéðinn nefndur til samanburðar. Til eru lýsingar vina og samferðamanna Jóns af líkamsbyggingu og persónu hans. Steinunn Jónsdóttir Inge (1874-1974) var í vist á bænum Garði í Hegranesi, skammt frá Utanverðunesi, frá 1889-1891. Hún lýsir Jóni svo: „Jón var yfir sex fet á hæð, herðabreiður mjög og svaraði sér vel, teinréttur á velli, ágætur sundmaður og með afbrigðum góður glímumaður, snar í snúningum. Hann hafði sérstaklega falleg og góðmannleg augu, hátt enni og dökkjarpt hár. Þegar ég þekkti hann, rakaði hann sig en hafði skegg á efri vörinni. Hann var alltaf glaður og spaugsamur, en spaug hans líka oft alvöruþrungið. Hann var hagmæltur og hafði gott vit á skáldskap. Hann var listaskytta og skaut margan selinn.“","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126818734408,"sku":"OSC-11980","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/67156.jpg?v=1754834082","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/jon-smann-ferjuma-83336-11980","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}