{"product_id":"kvaedi-eftir-brynjulf-jonsson-fra-minna-nupi-90929","title":"Kvæði eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi # 90929","description":"\u003cp\u003eKvæði eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi. Með mynd höfundarins.\u003cbr\u003eBrynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi var sjálfmenntaður íslenskur alþýðumaður sem lagði stund á fornleifafræði, heimspeki, kveðskap, þjóðsagnasöfnun og ritstörf. Hans mestu afrek voru á sviði fornleifafræðinnar en hann ferðaðist um landið, rannsakaði fornminjar og skrifaði skýrslur í Árbók hins íslenska fornleifafélags. Hann er einnig þekktur fyrir að hafa skrifað söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum sem stundum er talin vera yngsta Íslendingasagan.\u003cbr\u003eBrynjúlfur hafði alla tíð verið heilsulítill en um þrítugt veiktist illa með tímanum þurfti hann að hætta allri erfiðisvinnu. Sjálfur kenndi hann um falli af hestbaki. Veikindin sjálf sá hann sem lán í óláni; þar sem hann mátti ekki stunda erfiðisvinnu fékk hann meiri tíma til að mennta sig eins og hann sagði sjálfur í ævisögu sinni: „Þá er veikindi mín voru að byrja og lengi síðan, áleit ég þau hina mestu ógæfu; en svo hefir guðleg forsjón hagað til, að þau urðu upphaf minna betri daga.“ Þegar Brynjúlfi batnaði hóf hann að kenna börnum á veturna til þess að sjá fyrir sér og fékk síðar launað starf hjá Fornleifafélaginu, en Sigurður Guðmundsson málari hafði vakið áhuga hans á fornleifum. Um leið hélt hann stöðugt áfram að lesa sér til og fræðast og tókst að verða vel læs á sænsku, þýsku og ensku auk dönskunnar.\u003cbr\u003eBrynjólfur kvæntist ekki en eignaðist einn son, Dag Brynjúlfsson hreppstjóra í Gaulverjabæ.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54377113125192,"sku":null,"price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90929.jpg?v=1792677731","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/kvaedi-eftir-brynjulf-jonsson-fra-minna-nupi-90929","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}