{"product_id":"ljod-1947-1996-ljod-eftir-sigfus-dadason-90653","title":"Ljóð 1947-1996. Ljóð eftir Sigfús Daðason # 90653","description":"\u003cp\u003e Ljóð 1947-1996. Ljóð eftir Sigfús Daðason. \u003cbr\u003e\u003cspan\u003eSigfús Daðason (1928-1996) var eitt af höfuðskáldum Íslendinga á síðari hluta tuttugustu aldar. Hann hóf að yrkja á tímum mikillar gerjunar í bókmenntum og listum á Íslandi og kynntist ungur erlendum nútímaskáldskap. Þau kynni ásamt langri dvöl við bókmenntanám í Frakklandi höfðu mótandi áhrif á skáldskap hans sem þó er jafnan gæddur mjög persónulegum og upprunalegum tóni. Sigfús var ekki afkastamikið skáld en þegar öll ljóð hans eru saman komin í einu safni verður ljósara en ella hvað fjölbreytni þeirra er mikil. Það gildir bæði um efnisval og efnistök Sigfúsar, á þeim sviðum báðum færði hann út mörk íslenskrar ljóðlistar.\u003cbr\u003e\u003c\/span\u003eBókin \u003cem\u003eLjóð 1947–1996\u003c\/em\u003e er heildarsafn ljóða Sigfúsar Daðasonar (1928–1996) og kemur út þegar áttatíu ár eru liðin frá fæðingu hans. Hún hefur að geyma ljóðabækurnar \u003cem\u003eLjóð 1947–1951\u003c\/em\u003e (1951), \u003cem\u003eHendur og orð\u003c\/em\u003e (1959), \u003cem\u003eFá ein ljóð\u003c\/em\u003e (1977), \u003cem\u003eÚtlínur bakvið minnið\u003c\/em\u003e (1987), \u003cem\u003eProvence í endursýn\u003c\/em\u003e (1992), \u003cem\u003eOg hugleiða steina\u003c\/em\u003e (1997). Flestar hafa þær verið ófáanlegar um langa hríð. Þær eru birtar hér með þeim breytingum á einstökum ljóðum sem sem skáldið hafði mælt fyrir um.\u003cbr\u003eÞorsteinn Þorsteinsson bjó bókina til útgáfu og skrifaði inngangsorð. Bókinni fylgir geisladiskur með upplestri skáldsins á eigin ljóðum, \u003cem\u003eHljóðritanir 1985-1995\u003c\/em\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54181204164936,"sku":null,"price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90653.jpg?v=1790851609","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/ljod-1947-1996-ljod-eftir-sigfus-dadason-90653","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}