{"product_id":"lyraei-i-vijum-valds-blondudeilan-78367-66422","title":"Lýðræði í viðjum valds. Blöndudeilan # 78367","description":"Lýðræði í viðjum valds. Blöndudeilan. Heimildum flett með Helga Baldurssyni.\u003cbr\u003eÍ ritinu fjallar höfundur ítarlega og af mikilli þekkingu um \"Blöndudeiluna\" svokölluðu, sem kunn varð af umfjöllun fjölmiðla fyrir um hálfum öðrum áratug, en hafði að heita má legið í þagnargildi meðal alls þorra manna um nokkurt árabil, þegar bókin birtist. Ekki fer á milli mála, að bókin á að vera kærkomið heimildarrit öllum þeim mörgu mönnum ­ körlum og konum ­ um land allt, sem láta sig varða umhverfis- og náttúruverndarmál, og þangað geta þeir sótt mikinn lærdóm, einkum um það hvernig ekki á að standa að mikilvægum ákvörðunum um stórframkvæmdir á viðkvæmum öræfasvæðum, ákvörðunum, sem ekki verða aftur teknar eftir að framkvæmdar hafa verið og sem skilja eftir ófagran vitnisburð um skammsýni þeirra manna, er bera ábyrgð á þeim.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBókarhöfundur dregur ekki dul á, að hann hafi sjálfur verið í hópi þeirra landverndarmanna, sem beittu sér gegn þeirri virkjunarleið Blöndu, er valin var en sem hafði íför með sér mun meiri landeyðingu en vera þurfti ef önnur leið hefði verið valin ­ en í því efni mátti vissulega velja milli mismunandi kosta. Hann tekur einnig skýrlega fram, í upphafi bókar, að afstaða hans til virkjunar Blöndu hafi haft áhrif á val hans á heimildum og umfjöllun um þær. Lesandinn má því ekki vænta þess, að höfundurinn tali úr sæti hlutlauss dómara í þessu ágreiningsmáli, enda myndu það sæti vandfyllt. Bókin hefur að geyma málsvörn og rökstuðning fyrir skoðunum landverndarmanna og þar er sannarlega vel og fimlega á málum haldið. (Páll Sigurðsson í ritdómi í Morgunblaðinu. www.mbl.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51120897360200,"sku":"OSC-66422","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/78367.jpg?v=1754711953","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/lyraei-i-vijum-valds-blondudeilan-78367-66422","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}