{"product_id":"nu-nu-bokin-sem-aldrei-var-skrifu-28062-26813","title":"Nú - Nú, bókin sem aldrei var skrifuð # 28062","description":"Nú - Nú, bókin sem aldrei var skrifuð, minningar Steinþórs Þórðarsonar á Hala í Suðursveit. Stefán Jónsson sá um útgáfuna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003e„Er komið strand?“\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEinu sinni var það síðla kvölds á góunni, um eða upp úr 1920, að skúta siglir fullum seglum og stefnir undir Breiðabólstaðafjöru fram af Breiðabólstaðabæjum. Birtu var mikið farið að bregða; sást því ógreinilega til hennar. Þeir sem bezt þóttust sjá, sögðu hana komna upp í fjöru. Aðrir mölduðu í móinn, en sögðu, að líkur væru til að hún væri komin það nálægt, að lítill vafi mundi á því að hún færi í strand.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eNú var uppi fótur og fit á Breiðabólstaðabæjum. Stutt er þaðan fram í fjörinu, og í þetta sinn var greiður vegur, því að Breiðabólstaðarlón var á heldum ís. Allir karlmenn á bæjunum hlupu í skyndi af stað, en þeir voru sjö talsins, með öll nauðsynleg björgunartæki, eftir því sem þá var völ á. Þessi strandfrétt barst til Steins afa míns á Breiðabólstað. Þegar þetta gerðist, var hann búinn að vera blindur í nær þrjá áratugi og hafði orðið litla fótavist. Hann hafði þann sið, að hátta alsber, og eins var í þetta sinn. Nú reis karl upp í rúmi sínu og spyr með mesta ákafa: „Er komið strand?“ Honum var sagt, að líkur væru til þess. „Já, líkur til þess,“ endurtók hann.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVið þessa frétt hreykir afi sér hærra í rúminu, og rær aftur og fram og riðar meir – hann riðar mikið – og ákafar en venjulega. Ýmist tók hann stór föll út á hliðarnar, ekki ólíkt og skúta undir fullum seglum í stórsjó.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125640298824,"sku":"OSC-26813","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/28062.jpg?v=1754812952","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/nu-nu-bokin-sem-aldrei-var-skrifu-28062-26813","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}