{"product_id":"skaldi-fra-elivogum-29060-15541","title":"Skáldið frá Elivogum # 29060","description":"Skáldið frá Elivogum og fleira fólk. Rósberg G. Snædal skráði.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e„Brottför Sveins og Elínar frá Sneis bar snögglega að og með dálítið sögulegum hætti. Á miðjum túnaslætti fékk hann heimsókn að næturlagi af þremur drukknum mönnum. Einn þeirra lét eitthvað ófriðlega, fór á baðstofuglugga, sendi tóninn inn og vildi að Sveinn gengi til dyra og opnaði bæinn. Sveinn þorði ekki að eiga undir því og bærði ekki á sér, en Elín húsfreyja kom á móti komumanni að glugganum og átti orðastað við hann. Nú ber sögum ekki saman um það hvað næst gerðist, en gluggapósturinn var brotinn og glugginn allur. Þau hión riðu hið snarasta niður að Geitaskarði í Langa-dal og þaðan var hringt til sýslumannsins, Guðbrandar ísberg á Blönduósi. Réttarhöld fóru svo fram í máli þessu, en framburði vitna bar illa saman. Hjónin kváðu komumann hafa brotið gluggann og viðhaft hinar verstu hótanir, en hann neitaði þverlega. Meðreiðarsveinar hans sögðust ekki hafa séðhann við gluggann og ekki vitað hvað gerðist, því þeir hefðu verið að húsabaki einhverja stund. Féll svo málið niður. En Sveinn þóttist ekki óhultur á Sneis eftir þetta fyrir öfundar- og ofríkismönnum, sem sætu e. t. v. um líf hans. Hann tók sig því upp hið skjótasta að hann mátti og flutti með fjölskyldu og farangur frá Sneis og út í Skagastrandarkaupstað“","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126598697288,"sku":"OSC-15541","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/29060.jpg?v=1754829948","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/skaldi-fra-elivogum-29060-15541","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}