{"product_id":"sogustoum-77855-66074","title":"Á sögustöðum # 77855","description":"Á sögustöðum. Eftir Helga Þorláksson.\u003cbr\u003eHvað er svona merkilegt við sögustaði? Hér er fjallað um sex þeirra, alla fræga og óumdeilda: Bessastaði á Álftanesi, Hóla í Hjaltadal, Odda á Rangárvöllum, Reykholt í Borgarfirði og Skálholt og Þingvelli í Árnessýslu. Rakin er saga staðanna og reynt að grennslast fyrir um það á hverju hlutverk þeirra byggist.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHugmyndir okkar um sögustaðina sex mótuðust af þjóðernisrómantík á 19. og 20. öld, aðdáun á gullöld sem gat orðið að gullaldarglýju. Þjóðernishyggjunni fylgdi svo andúð á erlendu valdi og erlendum áhrifum í ýmsum myndum. Þótt nærri 80 ár séu frá því að lýðveldið var stofnað eimir enn eftir af viðhorfum til manna, staða og málefna sem urðu til í sjálfstæðisbaráttunni, þar sem hið innlenda og þjóðlega þykir æskilegt en flest erlent og alþjóðlegt óæskilegt. Það er sannarlega kominn tími á gagngert endurmat.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞess er að vænta að afstaða margra muni breytast við lestur bókarinnar þar sem almenn menningarsaga fær að vega þyngra en bjöguð stjórnmálasaga.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121033085256,"sku":"OSC-66074","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77855.jpg?v=1754713186","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/sogustoum-77855-66074","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}