{"product_id":"spegill-thjodar-91319","title":"Spegill þjóðar # 91319","description":"\u003cp\u003e Spegill þjóðar. Fréttamyndir í fimmtíu ár og sagan á bak við þær. Ljósmyndir Gunnar V. Andrésson. Texti Sigmundur Ernir Rúnarsson.\u003cbr\u003eMargar fréttaljósmynda Gunnars V. Andréssonar eru táknmyndir í sögu okkar – þegar við hugsum um tiltekna stórviðburði er það einatt einhver af myndum hans sem kemur upp í hugann.\u003cbr\u003eGunnar er enda einn áhrifamesti ljósmyndari okkar og margar fréttamynda hans hafa mótað hugmyndir okkar um sögu lands og þjóðar. Ferillinn spannar hálfa öld, frá því hann hóf störf á Tímanum 16 ára árið 1966. Síðar var hann á Vísi, DV og Fréttablaðinu. Og fjölmörg augnablikin sem Gunnar festi á filmu eru greypt í þjóðarsálina.\u003cbr\u003eGunnar velur hér á annað hundrað minnisstæðustu mynda sinna og Sigmundur Ernir Rúnarsson skráir söguna á bakvið hverja þeirra – úr verður einstakt og áhrifamikið sjónarspil; fréttaviðburðir, stjórnmál, íþróttir, náttúra, listir og skemmtanir, innlend og útlend stórmenni og okkar minnstu bræður og systur – allt á þetta sína fulltrúa í myndasafni GVA.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":55173900861768,"sku":null,"price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91319.jpg?v=1795606362","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/spegill-thjodar-91319","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}