{"product_id":"strandir-1918-ferdalag-til-fortidar-89967","title":"Strandir 1918. Ferðalag til fortíðar # 89967","description":"\u003cp\u003e Strandir 1918. Ferðalag til fortíðar. Ritstjóri Dagrún Ósk Jónsdóttir. \u003cbr\u003e\"Árið 1918 var merkilegt ár í sögu þjóðarinnar. Ísland fékk fullveldi og ýmsir stórviðburðir settu svip á mannlíf og samfélag. Hér er athygli beint að viðburðum og daglegu lífi á Ströndum á þessum tíma, birtar dagbækur, ferðasögur og fræðigreinar. Fjallað er um líf og störf fólks í Strandasýslu fyrir rúmri öld, á tímum sem standa okkur býsna nærri. Samt er margt við daglegt amstur fólks fyrir 100 árum framandi í samtímanum.\" (Káputexti).\u003cbr\u003eRitstjóri bókarinnar Strandir 1918 er Dagrún Ósk Jónsdóttir doktorsnemi í þjóðfræði og hún er einnig höfundur greinar um barnamenningu í bókinni. Einnig skrifa þjóðfræðingarnir Eiríkur Valdimarsson og Jón Jónsson hjá Rannsóknasetrinu greinar í bókina um hversdagslíf, viðburði og veðurfar, og Hafdís Sturlaugsdóttir landnýtingarfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða um búskaparhætti og náttúru. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, ritar formála að bókinni. Auk fræðigreina eru birtar heimildir frá þessum tíma í bókinni, ferðasaga eftir Guðmund Hjaltason alþýðufræðara sem fór fyrirlestraferð um Strandir 1917 og búnaðaryfirlit eftir Sigurð Sigurðsson búnaðarmálastjóra.  Þá eru brot úr tveimur dagbókum að finna í bókinni, annars vegar eftir Níels Jónsson á Grænhóli á Gjögri og hins vegar Þorstein Guðbrandsson á Kaldrananesi. Í dagbókunum fá lesendur tækifæri til að sjá hlutina með augum fólks sem sjálft upplifði þessa tíma.  \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53332543013192,"sku":null,"price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89967.jpg?v=1781877659","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/strandir-1918-ferdalag-til-fortidar-89967","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}