{"product_id":"undir-augliti-klukkunnar-50984-46184","title":"Undir augliti klukkunnar # 50984","description":"Undir augliti klukkunnar. Lífssaga Christophers Nolan. Þýðandi Garðar Baldvinsson sem einnig ritar formála.\u003cbr\u003eChristopher Nolan fæddist 6. september 1966 á Írlandi. Í fæðingu varð hann fyrir súrefnisskorti sem olli alvarlegum heilaskaða. Í ljós kom að hann gat hvorki talað né stjórnað hreyfingum sínum öðrum en augnhreyfingum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar hann var 11 ára rauf hann fjötra þagnarinnar eftir að hafa verið \"árum saman læstur ofan í líkkistu eigin líkama\". Þá tókst honum með aðstoð kennara síns og nýs lyfs sem hjálpaði honum að slaka á hálsvöðvunum að stjórna höfuðhneigingum sínum nægilega vel til þess að geta ýtt á ritvélar takka með pinna sem festur var við enni hans. Til þess þurfti hann geysilegt átak og einbeitingu en auk þess varð einhver að standa á bak við hann og styðja undir höku hans. Þetta hlutverk tók móðir hans að sér. Þegar hann fékk þannig \"málið\" birtust fágætir skáldhæfi leikar hans. Drengurinn reyndist hafa verið að yrkja ljóð frá því hann var 3ja ára og geymt þau í hugskoti sér.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta bók hans, Stíflubrestur draumanna, kom út þegar hann var 15 ára. Lífssögu sína segist Christopher hafa skrifað til að \"lýsa því hvernig heilaskaðað líf mitt er mér jafneðlilegt og líf heilbrigðra vina minna er þeim. Fyrir bókina hlaut Christopher bókmenntaverðlaunin \"The Whitbread Award.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124083196232,"sku":"OSC-46184","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50984.jpg?v=1754775920","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/undir-augliti-klukkunnar-50984-46184","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}