{"product_id":"undir-fana-lyveldisins-77866-66082","title":"Undir fána lýðveldisins # 77866","description":"Undir fána lýðveldisins. Endurminningar frá Spánarstyrjöldinni. Hallgrímur Hallgrímsson segir frá.\u003cbr\u003eSumarið 1937 ferðaðist Hallgrímur til Spánar í gegnum Frakkland til þess að berjast með spænska lýðveldishernum í spænsku borgarastyrjöldinni. Eftir komuna til Spánar dvaldi Hallgrímur stuttlega í herskóla í Albacete en var síðan sendur í liðsforingjaskóla í Madrigueras. Þar sem Hallgrímur talaði bæði þýsku og Norðurlandamál gegndi hann mikilvægu hlutverki sem túlkur milli mismunandi þjóðerna innan Thälmannsveitanna í lýðveldishernum. Talið er að hann hafi einnig verið pólitískur leiðtogi innan sveitanna sem var falið að skikka til hermenn og viðhalda aga. Hallgrímur barðist í orrustunni um Ebro og hlaut heiðursmerki og liðþjálfatign fyrir framgöngu sína í baráttunni um Gandesa og Batea.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHallgrímur fór frá Spáni þann 20. nóvember árið 1938 eftir að stjórn lýðveldisins ákvað að senda alla erlenda sjálfboðaliða heim. Hann kom heim til Íslands þann 4. desember og ferðaðist um landið til að halda fyrirlestra um reynslu sína úr Spánarstríðinu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121023287624,"sku":"OSC-66082","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/77866.jpg?v=1754713161","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/undir-fana-lyveldisins-77866-66082","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}