{"product_id":"uppbrot-hugmyndakerfis-19467-19633","title":"Uppbrot hugmyndakerfis # 19467","description":"Uppbrot hugmyndakerfis. Endurmótun íslenskrar utanríkisstefnu 1991-2007. Ritstjóri Valur Ingimundarson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFjallað er um þróun íslenskrar utanríkisstefnu og breytingar sem orðið hafa á stöðu Íslands á alþjóðavettvangi á tímabilinu. Höfundar eru 13 fræðimenn á sviði stjórnmálafræði, sagnfræði, lögfræði, landfræði, mannfræði, félagsráðgjöf og hagfræði. Sjónum er sérstaklega beint að: samskiptum Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum, þátttöku Íslands í Evrópusamrunanum, stefnu Íslands í friðargæslu og þróunarmálum, þeim breytingum sem orðið hafa á utanríkisviðskiptum Íslendinga og afstöðu stjórnvalda til erlendra fjárfestinga í stóriðju, aðild Íslands að samningum um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, samningum um fiskveiðistjórnun vegna veiða úr flökkustofnum og á alþjóðlegum hafsvæðum, skuldbindingum Íslands vegna mannréttindasamninga og framkvæmd fyrirmæla Öryggisráðsins í tengslum við valdheimildir, stefnu stjórnvalda gagnvart frjálsum félagasamtökum og opinberri stefnu í ferðamálum og ferðaflæði á alþjóðavettvangi.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126177661256,"sku":"OSC-19633","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/19467.jpg?v=1754824170","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/uppbrot-hugmyndakerfis-19467-19633","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}