{"product_id":"villtur-vegar-61280-19778","title":"Villtur vegar # 61280","description":"Villtur vegar. Ljóð eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ Wikipedia.org segir svo um Kristján skáld frá Djúpalæk.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristján var fæddur að Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi í Norður-Múlasýslu. Þetta landssvæði er austan Langaness og kallast Langanesströnd eða bara Ströndin af heimafólki og er við Bakkaflóa.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eForeldrar Kristjáns voru hjónin Einar Vilhjálmur Eiríksson (1871 – 1937), og Gunnþórunn Jónasdóttir (1895 – 1965).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSem barn sinnti hann hefðbundnum sveitastörfum unglinga, gegndi ám, gekk rekann og hirti sprek og fjalir, rótarhnyðjur og smámor og bar það upp á malir til þurrkunar svo nota mætti það í eldinn. Og ef heppnin var með mátti stundum finna rauðmaga á klöppunum sem rotast höfðu í brimrótinu. Gómsætt nýmeti.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVeturinn 1936 – 1937 stundaði Kristján nám við Eiðaskóla í Eiðaþinghá, þá tvítugur að aldri. Um vorið 1937 lést faðir hans og hélt hann þá heim að loknum prófum og vann hjá bróður sínu Sigurði við gerð íbúðarhúss sem hann var að byggja á nýbýlinu Bjarmalandi sem er aðeins steinsnar frá Djúpalæk. Bæði Djúpilækur og Bjarmaland eru núna eyðibýli.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHaustið 1938 fór hann í Menntaskólann á Akureyri og var þar fram til vors að hann hætti skólagöngu. Á Eiðum hafði Kristján kynnst heimasætunni frá Staðartungu í Hörgárdal, Unni Friðbjarnardóttur, sem hann kvæntist og bjó með til dauðadags.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUnnur og Kristján hófu búskap í Staðartungu árið 1938. Kristján þótti ekki sérstaklega hneigður til búskapar enda brugðu þau hjónin búi árið 1943 og fluttu til Akureyrar þar sem þau bjuggu næstu sex árin. Á þeim tíma vann Kristján aðallega verksmiðjuvinnu sem honum leiddist og hann þoldi illa. Hann fékk útrás við ljóðagerð og varð kunnur af henni og gerðist virkur verkalýðssinni. Þarna hófst einnig vinátta hans og Heiðreks Guðmundssonar skálds sem entist ævilangt.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ lok árs 1949 fluttu Kristján og Unnur til Hveragerðis sem þá var listamannamiðstöð Íslands. Þar bjuggu þau í húsi sem kallað var Bræðraborg eða Frumskógar 6.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eUm þetta leyti var hann orðinn þekktur sem ljóðskáld og dægurlagahöfundur og varð eftir því sem árin liðu æ þekktari. En frægðin dugði ekki til, það vantaði salt í grautinn eins og hjá fleiri listamönnum. Hann þurfti fyrir fjölskyldu að sjá og því tók hann að sér ýmsa vinnu. Hann var barnakennari í Hveragerði og Þorlákshöfn, og vann einnig við garðyrkjustörf, húsamálun og ýmislegt fleira.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁ Hveragerðisárunum kynntust hjónin meðal annarra Jóhannesi úr Kötlum, Kristmanni Guðmundssyni, Gunnari Benediktssyni, séra Helga Sveinssyni og fleiri mætum mönnum. Þarna bjuggu Kristján og Unnur til ársins 1961 og þar fæddist þeim einkasonurinn Kristján Krisjánsson heimspekingur sem nú er háskólakennari á Akureyri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1961 fluttu hjónin aftur til Akureyrar og í nokkur ár þar eftir tók Kristján að sér ritstjórn dagblaðsins Verkamannsins ásamt því að kenna í Grunnskóla Akureyrar og sinna ýmsum íhlaupastörfum auk vinnu við ritsmíðar sínar. Nokkur sumur sinnti hann veiðieftirliti með ám í Eyjafirði, Fnjóská, Hörgá og Eyjafjarðará.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKristján fékk margs konar viðurkenningar fyrir ljóðlist sína, svo sem verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, verðlaun úr Rithöfundarsjóði Ríkisútvarpsins og úr Listasjóði Akureyrarbæjar og naut Listamannalauna allt frá 1948.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÍ formála að einni af ljóðabókum hans veltir Gísli Jónsson fyrrverandi menntaskólakennari fyrir sér þeim andstæðum sem toguðust á Kristjáni:\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e„Kristján frá Djúpalæk er í senn íslenskur sveitamaður og alheimsborgari. Alls konar andstæður hafa togast á um hann: útþrá, heimþrá; breytingagirni, fastheldni; uppreisn, auðmýkt; beygur, dirfska; innileiki, kaldhæðni; alvara, skop; afneitun, trúrækni. Af öllum þessum þáttum er persónuleik hans slunginn og verður því mörgum torskilinn. Hann er skáld myrkursins í leit að ljósinu, skáld lífsblómsins sem stendur skjálfandi andspænis dauðanum og veit þó að hann er „vinur, bróðir“.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEn umfram allt er hann bara skáld.“\u003cbr\u003e","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126169829704,"sku":"OSC-19778","price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/kristjaneinarssonfradjupalaek_villturvegar.jpg?v=1754823927","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/villtur-vegar-61280-19778","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}