{"product_id":"visaga-sigurdar-ingjaldssonar-fra-balaskardi-86801-53387","title":"Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði # 86801","description":"Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði. Rituð af honum sjálfum.\u003cbr\u003eSigurður Ingjaldsson, rithöfundur frá Balaskarði, var fæddur að Ríp í Skagafirði 10.4. 1845.\u003cbr\u003eVoru foreldrar hans Ingjaldur bóndi Þorsteinsson og kona hans Guðrún Runólfsdóttir Jakobssonar, er þá bjuggu á Ríp. Ingjaldur var sonur Engilráðar Sæmundsdóttur sem var laundóttir Sæmundar Þorleifssonar, bónda í Brimnesi og Enni í Viðvíkursveit. Faðir Ingjalds var Þorsteinn Ingjaldsson, bóndi og járn- og málmsmiður í Skagafirði, sonur Elínar Eggertsdóttur ríka Þorsteinssonar. Sex ára gamall fluttist Sigurður ásamt foreldrum sínum að Balaskarði í Laxárdal í Húnavatnssýslu.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eKona Sigurðar var Margrét Kristjánsdóttir, f. 18.12. 1831, d. 17.12. 1908 frá Enni í Refasveit. Fluttu þau hjón vestur um haf 1887 og settust snemma að í Gimli og bjuggu þar síðan. Þau áttu engin börn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞegar Margrét lést fór Sigurður að fást við ritstörf. Ástæðuna fyrir skrifunum sagði hann vera „lífsleiðindi sem að mér sóttu“. Hann ritaði ævisögu sína sem kom út í þrem bindum, það fyrsta árið 1913, og einnig Gísla þátt Brandssonar. Eru sögurnar fullar af fróðleik um ferðalög og daglegt líf alþýðumanna á seinni hluta 19. aldar. Í formála að annarri útgáfu ævisögu hans árið 1957 segir Freysteinn Gunnarsson: „Þótti sumum löndum hans vestra hann ganga óþarflega langt í því að lýsa kotungsskapnum hér heima á Íslandi. En það er einn höfuðkostur bókarinnar... Virðast þær lýsingar alveg sannar og ófegraðar.“\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurður stundaði mikið formennsku á Íslandi og farnaðist vel. Þegar hann flutti til Kanada hafði hann verið 38 vertíðir á sjó, þar af 28 sem formaður. Sigurður var einnig vel hagur á ýmiss konar smíði og lagði fyrir sig að búa til spæni og göngustafi sem þóttu miklar gersemar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurður andaðist á jóladag árið 1933, 88 ára að aldri.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440317919560,"sku":"OSC-53387","price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/86801.jpg?v=1770471659","url":"https:\/\/www.bokin.is\/de\/products\/visaga-sigurdar-ingjaldssonar-fra-balaskardi-86801-53387","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}