{"product_id":"fra-sal-til-salar-91158","title":"Frá sál til sálar # 91158","description":"\u003cp\u003e Frá sál til sálar. Ævi og verk Guðmundar Finnbogasonar sálfræðings. Eftir Jörgen L. Pind. \u003cbr\u003eÞegar vér virðum vel fyrir oss form hluta eða hreyfingar þeirra, eða hlustum með óskiptri athygli á hljóð, þá vaknar löngum hjá oss hneigð til að líkja eftir því sem vér sjáum eða heyrum, líkja eftir því með vöðvahreyfingum sem verða í líkömum vorum. Þannig lýsti Guðmundur Finnbogason (1873–1944) kjarnanum í merkilegri kenn­ ingu sinni um samúðarskilninginn sem fjallar um „þær brautir er virðast liggja frá sál til sálar“. Er hún vafalítið ein frumlegasta kenning íslensks sálfræðings og bók hans Den sympatiske Forstaaelse sígilt rit í sögu norrænnar sálfræði. Hér segir frá ævi og verkum Guðmundar. Sérstaklega er vikið að sálfræðilegum hugmyndum hans og þá ekki síst kenningunni um samúðarskilninginn sem oft hef­ ur verið misskilin. Bókin er sérstök að því leyti að kafað er dýpra í hugmyndaheim Guðmundar en vant er í íslenskum ævisögum. Hugað er að því hvert hann sótti innblástur í verk sín, að viðtökum sem þau fengu og gildi þeirra nú. Bókin rekur einnig merkilegt framlag Guðmundar til íslenskra menntamála en hann var aðalhöfundur laga um alþýðufræðslu sem samþykkt voru á Alþingi árið 1907 og marka upphaf skólaskyldu á Íslandi. Í uppeldisritum sínum lagði Guðmundur megináherslu á að menntunin yrði að fylgja „þróunarlögum barnssálarinnar“. Með því kvað við nýjan tón í umræðum um menntamál hér á landi. Í bókinni er dregin upp minnisstæð mynd af bláfátækum sveitapilti sem braust frá smalaprikinu til æðstu mennta og tókst það ætlunarverk sitt að „setjast á bekk með“ merkum sálfræðingum á fyrri helmingi 20. aldar, þótt hann mætti stundum litlum skilningi meðal landa sinna. Þrátt fyrir mótlæti á stundum gekk Guðmundur að hverju verki með hita og fjöri eins og víða sér stað í umfjöllun höfundar. Bókin kemur nú út í endurskoðaðri útgáfu. \u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54695608418632,"sku":null,"price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91158a.jpg?v=1794590133","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/fra-sal-til-salar-91158","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}