{"product_id":"magnus-olafsson-ljosmyndari-90141","title":"Magnús Ólafsson ljósmyndari # 90141","description":"\u003cp\u003e Magnús Ólafsson ljósmyndari - photographer. Ritstjóri María Karen Sigurðardóttir. Megintexti Eiríkur Guðmundsson. Þýðing Anna Yates.\u003cbr\u003e\u003cspan dir=\"auto\"\u003e Ljósmyndasafn Reykjavíkur kynnir útgáfu á ljósmyndabókinni Magnús Ólafsson ljósmyndari. Gefin út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Magnúsar Ólafssonar þann 27. sept. til 1. des. 2003 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í þessari veglegu bók sem kostuð er af afkomendum þessa merka ljósmyndara er að finna 108 ljósmyndir eftir Magnús í gæðaprentun, teknar á fyrstu þremur áratugum 20. aldarinnar. Ljósmyndir hans vega salt á milli heimildagildis og ævintýris og veita okkur einstæða sýn inn í horfinn heim og bregða upp svipmyndum frá tímabili sem samhliða tækniframförum einkenndist af þjóðfélagsbreytingum og þróun borgarsamfélags í Reykjavík. Auk ljósmyndanna er að finna í bókinni greinar eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara. Bókin verður til sölu í helstu bókabúðum landsins og einnig má nálgast hana á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. (Bókatíðindi 2003).\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53782546121032,"sku":null,"price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90141.jpg?v=1786714646","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/magnus-olafsson-ljosmyndari-90141","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}