{"product_id":"nokkrir-salmar-eftir-kolbein-grimsson-89163","title":"Nokkrir sálmar eftir Kolbein Grímsson # 89163","description":"\u003cp\u003eNokkrir sálmar eftir Kolbein Grímsson. Gefið út í \u003cb\u003e300\u003c\/b\u003e eintökum.\u003cbr\u003eLjósprentað eftir frumútgáfunni frá Hólum 1682. Nockrer Psalmar sem syniast meiga Kuølld og Morgna vm alla Vikuna. Ordter af Kolbeine Grijms Syne, wt af Bænabokk D. Johañis Havermañ.\u003cbr\u003eLítið er vitað um ævi Kolbeins og óvíst um fæðingarár hans og dánarár. Ætla má þó að hann sé fæddur um 1600 þar sem hann getur þess í \u003cem\u003eGrettisrímum\u003c\/em\u003e sínum, sem ortar eru 1658, að hann sé þá „nær sextugs aldri“ og í \u003cem\u003eNokkrir sálmar\u003c\/em\u003e eftir Kolbein 1682 á Hólum er þess ekki getið að hann sé dáinn. – Vitað er að Kolbeinn bjó um tíma á Dagverðará undir Jökli. Ýmsar þjóðsögur eru til af Kolbeini og var hann talinn kraftaskáld. Þekktust er vafalaust þjóðsagan af því er hann kvaðst á við Fjandann á brún Þúfubjargs og bar hærra hlut. Mikill kveðskapur er varðveittur eftir Kolbein í handritum. Þar má nefna: \u003cem\u003eSkilnaðarskrá\u003c\/em\u003e (við satan); \u003cem\u003ePíslarminningu\u003c\/em\u003e, \u003cem\u003eDýrðardikt\u003c\/em\u003e og kvæði sem nefnist \u003cem\u003eVíðförull\u003c\/em\u003e, landfræðilegt yfirlit til fróðleiks alþýðu manna. Í handritum eru honum einnig eignaðar \u003cem\u003eRímur af Tíodel riddara\u003c\/em\u003e. Eru þær sex að tölu (sjá: \u003ci\u003eLbs 989 4to\u003c\/i\u003e, \u003ci\u003eLbs 990 4to\u003c\/i\u003e og \u003ci\u003eAM 616a 4to\u003c\/i\u003e).\u003cbr\u003e\u003ci\u003e Nokkrir sálmar \u003c\/i\u003eeftir Kolbein voru prentaðir á Hólum 1682 og \u003ci\u003eRímur af Sveini Múkssyni \u003c\/i\u003eí \u003ci\u003eRitum Rímnafélagsins\u003c\/i\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52768857948488,"sku":null,"price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/89163.jpg?v=1774453512","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/nokkrir-salmar-eftir-kolbein-grimsson-89163","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}