{"product_id":"skyggna-konan-i-ii-90896","title":"Skyggna konan I-II # 90896","description":"\u003cp\u003eSkyggna konan. Frásagnir um dulsýnir og lækningar Margrétar frá Öxnafelli. Safnað hefur og skráð Eiríkur Sigurðsson skólastjóri á Akureyri.\u003cbr\u003eMargrét Jónsdóttir Thorlacius, eða Margrét frá Öxnafelli eins og hún var betur þekkt fæddist þann 12. apríl 1908 að Öxnafelli í Eyjafirði en hún var eitt af 13 börnum þeirra hjóna Jóns Thorlaciusar og Þuríðar Jónsdóttur. Margrét ólst upp við fátækt en fjölskyldan leið sem aldrei neinn skort.\u003cbr\u003eMargrét var skyggn allt frá fæðingu og var hún m.a. ekki nema fjögurra ára þegar hún sá oft ljós á kvöldin í fjalli við bæinn, síðar fór hún einnig að sjá huldufólk þar.\u003cbr\u003eMargrét sá jafnt blik fólks(áru), huldufólk, álfa, framliðna, löngu liðna atburði og fylgjur svo eitthvað sé upptalið. Einnig lék hún sér oft við huldubörn.\u003cbr\u003eUpphaf dularlækninga Margrétar má rekja til þess þegar hún var tíu ára. Þá varð hún fyrst vör við Friðrik, en hún sá hann meðal huldufólks hjá Svörtuklettum. Hún spurði hann hvort hann væri huldumaður. Friðrik svaraði að hún mætti kalla hann það. Margrét telur að Friðrik hafi sagt þetta við sig til þess að hún yrði síður hrædd við hann. Seinna áttaði Margrét sig á því að Friðrik er mennskur, framliðinn maður.\u003cbr\u003eUm þetta leyti var móðir Margrétar mikið veik. Þá var hún orðin kunnug Friðriki og spurði hann eitt sinn hvort hann gæti hjálpað móður sinni. Friðrik tók vel í það og Margrét varð meira en lítið undrandi þegar hann birtist í hvítum slopp eins og læknar nota. Móður hennar batnaði eftir þetta og komst á fætur skömmu síðar.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54363096547656,"sku":null,"price":4900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90896.jpg?v=1792577460","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/skyggna-konan-i-ii-90896","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}