{"product_id":"svanurinn-91235","title":"Svanurinn # 91235","description":"\u003cp\u003eSvanurinn. Skáldsaga eftir Guðberg Bergsson.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"margin: 0cm 0cm 0pt;\"\u003eHún er níu ára gömul þegar hún er send í sveitina til að bæta fyrir brot sitt. Í nýju umhverfi vakna óvæntar kenndir – dularfullar, ógnvekjandi og sárar. Náttúra sveitarinnar og tilfinningar telpunnar tala saman í því margræða máli sem Guðbergur Bergsson hefur flestum skáldum betur á valdi sínu. Gleðin kallast á við harminn – frelsið við fjötrana – í þessari meistaralegur sögu um litla manneskju, eina og óstudda, í leit að lífinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"margin: 0cm 0cm 0pt;\"\u003e\u003cem\u003eSvanurinn\u003c\/em\u003e hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1991.\u003c\/p\u003e\n\u003cblockquote\u003e\n\u003cp class=\"MsoNormal\" style=\"margin: 0cm 0cm 0pt;\"\u003eOg þjóðsagan hermdi að nykurinn færi á milli fjallanna og hann ætti heima ofan í dýpi vatnanna og sæist synda stundum í svanslíki á spegilsléttu yfirborði þeirra í algerri og lamandi háfjallakyrrð. Fólk í sveitinni hafði haft fyrir sið að ríða að fjallinu einu sinni á sumrin, snemma í ágúst, í von um að geta séð svaninn svífa þakinn gróðri og slýi úr djúpinu upp á yfirborðið með söng um eðli og framtíð þess sem horfði á hann.\u003c\/p\u003e\n\u003c\/blockquote\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54934531965256,"sku":null,"price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91235.jpg?v=1795009354","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/svanurinn-91235","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}