{"product_id":"verdandi-90003","title":"Verðandi # 90003","description":"\u003cp\u003eVerðandi. Útgefendur: Bertel E. Ó. Þorleifsson, Einar Hjörleifsson, Gestur Pálsson, Hannes Hafstein. Allt sem út kom. \u003cbr\u003eGott eintak Verðanda. Kemur úr bókasafni Steindórs frá Hlöðum og prýðir bókmerki hans Verðanda.\u003cbr\u003eVerðandi var íslenskt tímarit sem kom út í Kaupmannahöfn árið 1882 og er upphaf raunsæisstefnunnar á Íslandi miðað við útgáfu þess. Aðeins kom út eitt hefti af tímaritinu en það hafði þó mikil áhrif á íslenskar bókmenntir.\u003cbr\u003eÚtgefendur tímaritsins voru fjórir ungir menntamenn sem allir voru eða höfðu verið við nám í Danmörku. Þetta voru þeir Gestur Pálsson, Einar H. Kvaran, Bertel Þorleifsson og Hannes Hafstein, sem var yngstur fjórmenninganna, rétt rúmlega tvítugur. Gestur og Einar birtu smásögur í tímaritinu en Hannes og Bertel ljóð. Sum ljóð Hannesar sem þarna birtust í fyrsta sinn urðu alþekkt, svo sem Stormur, Skarphéðinn í brennunni, Nei, smáfríð er hún ekki, Sprettur (Ég berst á fáki fráum) og Þar sem háir hólar, en af öðru efni tímaritsins er smásaga Gests, Kærleiksheimilið, líklega þekktust.\u003cbr\u003eEkki var neinn sérstakur inngangur eða stefnuyfirlýsing í tímaritinu en þó varð strax ljóst að þarna var ný stefna á ferðinni sem ekki hafði áður sést í íslenskum bókmenntum. Voru fjórmenningarnir kenndir við tímaritið og kallaðir Verðandimenn.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53347571106120,"sku":null,"price":49500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/90003.jpg?v=1782130270","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/verdandi-90003","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}