{"product_id":"wagner-og-volsungar-91208","title":"Wagner og Völsungar # 91208","description":"\u003cp\u003e Wagner og Völsungar. Niflungahringurinn og íslenskar fornbókmenntir. Eftir Árna Björnsson. \u003cbr\u003eGott eintak, forlagsband og kápa. Árituð \"uppá gamlan kunningsskap\".\u003cbr\u003eDr. Árni Björnsson um niðurstöður rannsókna sinna á því hvernig Richard Wagner nýtti fornar íslenskar heimildir til að skapa viðburðarás og texta Niflungahringsins. Útkoma bókarinnar er mikið fagnaðarefni fyrir Richard Wagner félagið á Íslandi, sem átti frumkvæðið að rannsóknum Árna og stuðlaði að framgangi þeirra. Rannsóknir Árna eru afar þýðingarmiklar fyrir áhugafólk um íslenskar fornbókmenntir og ekki síður fyrir unnendur verka Richards Wagners því í ljós kemur að Wagner sótti mun meira til íslenskra fornrita en áður hefur verið talið.\u003cbr\u003eÞótt kynning Árna á niðurstöðum rannsókna hans sé megintilgangur bókarinnar, kemur hann þó víðar við í bók sinni. M.a. rekur hann aðdragandann að áhuga Þjóðverja á íslenskum fornritum á 18. og 19. öld og segir frá tengslum Íslendinga við tónlist Wagners í gegnum tíðina. Árni segir m.a. frá fjölmörgum íslenskum listamönnum, sem hafa tekið þátt í flutningi á verkum Wagners og frá ferðum Íslendinga á tónlistarhátiðina í Bayeruth.\u003c\/p\u003e","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":54925874037064,"sku":null,"price":9500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/91208.jpg?v=1794999291","url":"https:\/\/www.bokin.is\/en\/products\/wagner-og-volsungar-91208","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}