{"product_id":"36-ljo-eftir-hannes-petursson-80268-35123","title":"36 ljóð eftir Hannes Pétursson # 80268","description":"36 ljóð eftir Hannes Pétursson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHannes Pétursson fæddist á Sauðárkróki 14. desember 1931. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1952 og kandídatsprófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann stundaði nám í germönskum fræðum við háskólana í Köln og Heidelberg 1952 til 1954. Hannes vann við útgáfu hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs á árunum 1964-1976, var útgáfustjóri Smábóka Menningarsjóðs 1959-1969 og Alfræði Menningarsjóðs 1972-1976. Hann sat í ritstjórn Skagfirðingabókar, ársriti Sögufélags Skagfirðinga, á árunum 1966-1973.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta bók Hannesar, Kvæðabók, kom út 1955. Hann hefur sent frá sér fjölda kvæða- og ljóðabóka síðan sem og smásagnasafn, fræðirit, greinar og ævisögur. Hann hefur einnig fengist við þýðingar, meðal annars þýddi hann Hamskiptin eftir Franz Kafka úr þýsku 1960. Hannes hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín á löngum ritferli. Hann var kjörinn heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands 1991 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1993 fyrir ljóðabókina Eldhylur.\u003cbr\u003eHannes var útnefndur Heiðurssveitungi Álftaness 2006.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cb\u003eÞú gekkst mér við hlið\u003c\/b\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞú gekkst mér við hlið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eað garði sofenda\u003cbr\u003e\u003cbr\u003evorkvöld þegar sólin\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eseig rauð til eyja.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSvo reikaði ég einn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehjá algrónum þúfum\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog rýndi, fávís\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþau rök: að deyja.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eLínur sem ég kvað\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eum kvöldstund þessa\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eum leiðin og grasið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eog gamlan nafna minn\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþær lagðir þú allar\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþér á ljóðelskt hjarta -\u003cbr\u003e\u003cbr\u003esem nú er komið\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí næturstað sinn","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125256388936,"sku":"OSC-35123","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/37976.jpg?v=1754800201","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/36-ljo-eftir-hannes-petursson-80268-35123","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}