{"product_id":"a-brunnum-65027-57057","title":"Að brunnum # 65027","description":"Að brunnum. Ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur Jóhann Sigurðsson fæddist að Hlíð í Garðahreppi, Gullbringusýslu, en ólst upp frá barnæsku á Torfastöðum í Grafningi. Foreldrar Sigurður Jónsson bóndi og hreppstjóri og Ingibjörg Þóra Jónsdóttir. Árið 1933, þegar Ólafur Jóhann Sgurðsson var 15 ára gamall, fluttist hann til Reykjavíkur staðráðinn í að gerast skáld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1936 – 1937 og í New York veturinn 1943- 1944 þar sem hann sótti fyrirlestra um nútímabókmenntir og skáldsagnaritun við Columbia University.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta bók Ólafs, skáldsagan Við Álftavatn, kom út 1934, þegar hann var 16 ára. Í henni birtir hann sögubrot þar sem hann styðst við endurminningar frá æskustöðvunum sínum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1936 birtist í Æskunni vinsæl framhaldssaga eftir hann, Sagan um glerbrotið, sem síðar kom út sem bók 1970.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur skrifaði aðallega skáldverk, bæði sögur og ljóð, ætluð fullorðnum og hafa mörg þeirra verið þýdd á erlend tungumál, má þar nefna Spóa, Glerbrotið, Um sumarkvöld og Litbrigði jarðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1972 fékk Ólafur Silfurhestin, bókmenntaverðlaun dagblaðanna og 1976 hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ljóðabækurnar Að laufferjum og Að brunnum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51122449482056,"sku":"OSC-57057","price":3900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/65027.jpg?v=1754743745","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/a-brunnum-65027-57057","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}