{"product_id":"a-er-yfir-oss-vaka-55110-49577","title":"Það er yfir oss vakað # 55110","description":"Það er yfir oss vakað. Valdir kaflar úr ræðum séra Haralds Níelssonar, prófessors. Með inngangi eftir dr. Pétur Pétursson.\u003cbr\u003eSéra Haraldur Níelsson hafði mikil áhrif á þjóð sína sem fyrirlesari\u003cbr\u003eog predikari. Vegna afskipta sinna af spíritisma og sálarrannsóknum varð\u003cbr\u003ehann einn umdeildasti maður síns tíma. Hann sannfærðist um\u003cbr\u003eraunveruleika svokallaðra miðlafyrirbæra og dró af þeim ályktanir í\u003cbr\u003eumfjöllun sinni um stöðu og hlutverk kristinnar trúar í samtímanum.\u003cbr\u003eHaraldur tók til endurskoðunar ýmsar erfikenningar kirkjunnar og beitti\u003cbr\u003evíðtækri biblíuþekkingu sinni til að slá vopnin úr höndum andstæðinga\u003cbr\u003esinna. Þær deilur sem af þessu spruttu urðu harðar og langvinnar og eiga\u003cbr\u003esér vart hliðstæðu í trúarsögu þjóðarinnar. Því hefur verið haldið fram\u003cbr\u003eað hjarta íslensku þjóðkirkjunnar hafi brostið í þessum átökum.\u003cbr\u003eAndstæðingar hans vildu gera hann rækan úr kirkjunni og fannst það óhæfa\u003cbr\u003eað hann væri kennari prestefna. Fylgjendur hans höfðu aftur á móti\u003cbr\u003emikið dálæti á honum svo við lá persónudýrkun. Árið 1914 hóf séra\u003cbr\u003eHaraldur að predika annan hvorn sunnudag í Fríkirkjunni í Reykjavík og\u003cbr\u003evar kirkjusóknin með eindæmum góð svo oft urðu margir frá að hverfa. Í\u003cbr\u003eþessari bók er að finna tuttugu og fimm predikanir eftir séra Harald.\u003cbr\u003eNítján þeirra hafa áður birst á prenti, flestar í predikunarsöfnum hans,\u003cbr\u003esem eru nú fyrir löngu ófáanleg. Ræðurnar eru flestar styttar þannig að\u003cbr\u003eýmsu í heimfærslu predikunartextanna sem skírskortar til málefna þess\u003cbr\u003etíma sem þær voru fluttar á er sleppt. Einnig er því sleppt sem ekki\u003cbr\u003etengist beinlínis meginþema predikunarinnar og er augljóslega fremur til\u003cbr\u003euppfyllingar. Lögð er áhersla á að meginhugsun predikananna komist til\u003cbr\u003eskila og það kemur í ljós að Haraldur stendur í boðun sinni á klassískum\u003cbr\u003egrunni kristninnar. Það á einkum við um kristsfræði hans og\u003cbr\u003esköpunarguðfræði. Predikun Haralds á enn erindi við landsmenn og\u003cbr\u003etímabært að endurmeta guðfræði hans og áhrif á íslensku kirkjuna. Dr.\u003cbr\u003ePétur Pétursson ritar inngang að bókinni.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123749388616,"sku":"OSC-49577","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55110.jpg?v=1754765875","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/a-er-yfir-oss-vaka-55110-49577","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}