{"product_id":"a-gefnu-tilefni-31626-29699","title":"Að gefnu tilefni # 31626","description":"Að gefnu tilefni. Deilurit eftir Þorgeir Þorgeirson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorgeir Þorgeirson rithöfundur, þýðandi og kvikmyndagerðarmaður. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa þýtt Alexis Sorbas eftir Nikos Kazantzakis og margar bóka William Heinesen á íslensku. Hann er einnig þekktur fyrir greinaskrif sín, baráttu sína við Mannréttindadómstólinn í Evrópu og deilur sína við íslenska ríkið sem snerist um að fá leyfi til að skrifa Þorgeirson með einu s-i.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorgeir varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953. Þá lærði hann þýsku, sálfræði og listasögu við háskólann í Vínarborg 1953 til 1954, dvaldi á Spáni 1954, lærði sjónvarpsleikstjórn í París 1955 til 1956 og kvikmyndastjórn í listaakademíunni í Prag 1959 til 1962. Þorgeir gerði kvikmyndina Maður og verksmiðja í anda evrópsku framúrstefnunnar árið 1968.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorgeir starfaði við kvikmyndagerð 1962 til 1972 samhliða leiðsögustörfum hjá Ferðaskrifstofu ríkisins. Hann vann við ýmis ritstörf, þýðingar og leikstjórn í útvarpi frá 1962. Kennari var hann við Leiklistarskóla SÁL árin 1973 til 1976.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞorgeir vann mál gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu 1992 eftir að hafa verið dæmdur í Hæstarétti fyrir greinaskrif um lögregluna í Morgunblaðið 1983. Í greinni reifaði Þorgeir nokkur atvik sem hann taldi sig hafa heimildir fyrir, og kom þar fram að lögreglan beitti oftsinnis ofbeldi í starfi sínu og hafi menn hlotið líkamstjón af, jafnvel örkuml. Í greinum Þorgeirs notaði hann orð eins og „einkenniskædd villidýr“, „einkennisklædd óargadýr“ og „lögregluhrottar“.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51125484945736,"sku":"OSC-29699","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/31626.jpg?v=1754809075","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/a-gefnu-tilefni-31626-29699","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}