{"product_id":"a-laufferjum-84559-9946","title":"Að laufferjum # 84559","description":"Að laufferjum. Ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur Jóhann Sigurðsson fæddist að Hlíð í Garðahreppi, Gullbringusýslu, en ólst upp frá barnæsku á Torfastöðum í Grafningi. Foreldrar Sigurður Jónsson bóndi og hreppstjóri og Ingibjörg Þóra Jónsdóttir. Árið 1933, þegar Ólafur Jóhann Sgurðsson var 15 ára gamall, fluttist hann til Reykjavíkur staðráðinn í að gerast skáld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHann dvaldist í Kaupmannahöfn veturinn 1936 – 1937 og í New York veturinn 1943- 1944 þar sem hann sótti fyrirlestra um nútímabókmenntir og skáldsagnaritun við Columbia University.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFyrsta bók Ólafs, skáldsagan Við Álftavatn, kom út 1934, þegar hann var 16 ára. Í henni birtir hann sögubrot þar sem hann styðst við endurminningar frá æskustöðvunum sínum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1936 birtist í Æskunni vinsæl framhaldssaga eftir hann, Sagan um glerbrotið, sem síðar kom út sem bók 1970.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÓlafur skrifaði aðallega skáldverk, bæði sögur og ljóð, ætluð fullorðnum og hafa mörg þeirra verið þýdd á erlend tungumál, má þar nefna Spóa, Glerbrotið, Um sumarkvöld og Litbrigði jarðar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÁrið 1972 fékk Ólafur Silfurhestin, bókmenntaverðlaun dagblaðanna og 1976 hlaut hann bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ljóðabækurnar Að laufferjum og Að brunnum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126918775112,"sku":"OSC-9946","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/23875.jpg?v=1754836257","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/a-laufferjum-84559-9946","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}