{"product_id":"abraham-lincoln-bandarikjaforseti-55622-50043","title":"Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti # 55622","description":"Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti. Ævisaga. Eftir Nínu Brown Baker. Freysteinn Gunnarsson þýddi.\u003cbr\u003eAbraham Lincoln var sextándi forseti Bandaríkjanna í Norður-Ameríku var fæddur árið 1809 og andaðist árið 1865, er hann féll fyrir morðingja hendi, staddur í leikhúsi í Washington. Lincoln var af fátæku fólki komin og ólst upp við harðrétti. Hann var fæddur í Kentucky, en fluttist þaðan barn að aldri með foreldurm sínum, fyrst til Indiana og síðar til Illinois, þar sem hann átti lengst heima í borginni Springfield. Á unga aldri missti hann móður sína, en eignaðist nokkru síðar góða stjúpu, sem gekk honum í móðurstað. Lincoln var að mestöllu leyti sjálfmenntaður maður, las lög og stundaði lögfræðistörf í Springfield. Kona Lincolns var Mary Todd og eignuðust þau þrjá sonu og misstu einn þeirra á barnsaldi. Lincoln var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1860 og endurkjörinn árið 1864. Á forsetatíð hans geysaði borgarastyrjöld í Bandaríkjunum. Um það var barist, hvort þrælahald skyldi leyft eða bannað. Norðuríkjamenn undir æðstu forystu Lincolns börðust fyrir frelsi allra manna og sigruðu. Yfirlýsingin um afnám þrælahalds var einhver stærsti sigurvinningur Lincolns. Abraham Lincoln er einn hinn ástsælasti allra Bandaríkjaforseta og metinn og virtur að verðleikum um allan heim. (Káputexti).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123682804040,"sku":"OSC-50043","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/55622.jpg?v=1754764452","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/abraham-lincoln-bandarikjaforseti-55622-50043","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}