{"product_id":"afkastamikill-mannvinur-59939-53355","title":"Afkastamikill mannvinur # 59939","description":"Afkastamikill mannvinur. Starfssaga séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar. Jón Kr. Ísfeld tók saman og skrásetti.\u003cbr\u003eSigurbjörn fæddist í Glæsibæ í Sæmundarhlíð 1.1. 1876, sonur Gísla Sigurðssonar, bónda þar og í Neðra-Ási í Hjaltadal, og Kristínar Björnsdóttur húsfreyju.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEiginkona Sigurbjörns var Guðrún, alþm. og rithöfundur, dóttir Lárusar H. Halldórssonar, prófasts, alþm. og fríkirkjuprests í Reykjavík, og k.h., Kristínar Katrínar Pétursdóttur Guðjohnsen húsfreyju.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurbjörn og Guðrún bjuggu að Ási við Ásvallagötu í Reykjavík en Guðrún fórst af slysförum, ásamt tveimur dætrum þeirra hjóna er bifreið rann út í Tungufljót 1938.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMeðal barna Sigurbjörn og Guðrúnar voru Lárus, borgarminjavörður og öðrum fremur stofnandi Árbæjarsafnsins; Gísli, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, og Friðrik, stórkaupmaður í Reykjavík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurbjörn lauk stúdentsprófum frá Lærða skólanum í Reykjavík 1897, embættisprófi í guðfræði frá Prestaskólanum árið 1900 og fór víða um heim til að kynna sér trúmála- og líknarstörf. Hann starfaði að kristindómsmálum alla tíð, sinnti barnaguðþjónustum guðfræðinema 1897-1900 og síðar sunnudagaskólastarfi í Reykjavík í fjóra áratugi. Hann ferðaðist um landið í 30 sumur til að vekja áhuga á kristilegu sjálfboðastarfi, kenndi við Kvennaskólann, Barnaskóla Reykjavíkur, Æskulýðsskólann, Kennaraskóla Íslands, Verslunarskóla Íslands og Vélstjóraskóla Íslands. Hann stofnaði, ásamt Gísla, syni sínum, Elli- og hjúkrunarheimilið Grund og var heimilisprestur þar frá 1942 og til æviloka.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSigurbjörn var ritstjóri kristilegra tímarita og sinnti ótal trúnaðarstörfum fyrir bindindishreyfinguna, kristniboð og á sviði líknarmála. Hann var formaður sóknarnefndar Dómkirkjunnar í 30 ár, sat í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands, var stjórnarformaður Sambands íslenskra kristniboðsfélaga og formaður Barnaverndarráðs. Hann hlaut margvíslega viðurkenningu frá íslenskum og erlendum félagasamtökum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123023184200,"sku":"OSC-53355","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/59939.jpg?v=1754755486","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/afkastamikill-mannvinur-59939-53355","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}