{"product_id":"akkir-76062-64890","title":"Þakkir # 76062","description":"Þakkir. Kvæði eftir Rósu B. Blöndals. Þetta er fyrsta bók Rósu B. Blöndals.\u003cbr\u003eRósa B. Blöndals hét fullu nafni Jóhanna Rósa Björnsdóttir Blöndal. Hún fæddist 20. júlí árið 1913 í Reykjavík.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRósa nam í Héraðsskólanum á Laugarvatni og Kennaraskóla Íslands. Hún lauk kennaraprófi árið 1934 og starfaði síðan við kennslu og skólastjórn víða um land. Lengst af var Rósa kennari á Laugarvatni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRósa giftist séra Ingólfi Ástmarssyni og bjó lengst af með honum á Mosfelli í Grímsnesi. Frá árinu 1981 bjuggu hjónin á Selfossi en Ingólfur lést árið 1994.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eRósa vann mikið að ritstörfum; hún sendi frá sér bæði ljóð og lausamál, hélt erindi og birti greinar í blöðum. Einnig birtist eftir hana smásaga í Pennaslóðum árið 1959 en þar áttu tíu aðrar nafnkunnar konur stuttar sögur. Í viðtali frá árinu 1964 við þau hjónin talar Rósa hins vegar af mikilli hógværð um skáldskap sinn, vill ekki á hann minnast og kallar hann „barnabrek“ og „æskuóra.“ Það þurfi hæfileika til að skrifa segir hún. (www.skald.is)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51121165664584,"sku":"OSC-64890","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/76062.jpg?v=1754717082","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/akkir-76062-64890","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}