{"product_id":"althingismaurinn-og-doninn-50843-46070","title":"Alþingismaðurinn og dóninn # 50843","description":"Alþingismaðurinn og dóninn. Kvæði eftir Kengon.\u003cbr\u003eÞetta kvæði var frægt árin 1924-1925, fyrst meðal Hafnarstúdenta. Jón Helgason prófessor orti það um alþingismanninn Jakob Möller sem hafði orðið það á detta illa í það í Kaupmannahöfn þegar hann átti að tala á fundi hjá Stúdentafélaginu. Jóni var ekki vel við Jakob, gat verið dómharður um fólk, og færði vitaskuld mjög í stílinn. En kvæðið var óstöðvandi eftir að það hafði verið ort, það var gefið í Reykjavík undir yfirskriftinni Alþingismaðurinn og dóninn eftir Kengon. Það var síðan prentað í kvæðabókinni Úr landsuðri 1939. Jón felldi það út úr síðari útgáfum bókarinnar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞú alþingis gimsteinn, sem glóir og skín,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eí gulli og reykelsi og myrru,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eeitt augnablik hélt ég þig ódrátt og svín,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003enú iðrast ég þvílíkrar firru.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHve hróplegt það ranglæti að hugsa til þín,,\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ehve heimskuleg fjarstæða að gruna\u003cbr\u003e\u003cbr\u003ejafnhófsaman öðling sem hatar allt vín\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eþað hefði ég víst átt að muna!","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124086210888,"sku":"OSC-46070","price":39500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/50843.jpg?v=1754776272","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/althingismaurinn-og-doninn-50843-46070","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}