{"product_id":"atviksor-i-thati-68288-17999","title":"Atviksorð í þátíð # 68288","description":"Atviksorð í þátíð. Ljóðmæli eftir Hermann Pálsson. Baldur Hafstað ritar eftirmála.\u003cbr\u003eHermann Pálsson prófessor í Edinborg lést af slysförum þann 11. ágúst 2002 í Búlgaríu. Þar var endi bundinn á glæsilegan fræðimannsferil einhvers nafnkunnasta vísindamanns á sviði íslenskra fræða. Færri vissu um skáldskap Hermanns sem birtist snemma á fræðaferli hans í bókunum Söngvar frá Suðureyjum (1955) og Þjóðvísur og þýðingar(1958).\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEftir lát Hermanns kom í ljós að hann átti tilbúið handrit ljóða til útgáfu. Þessi ljóð sverja sig í ætt við fyrri kveðskap hans og grunnstefin eru ekki ósvipuð, rammíslensk en gjarnan tengd \"útlegð\" höfundarins og fjarlægð frá ættlandi og átthögum. Fróðlegt er að skyggnast inn í hugskot hins merka fræðaþular sem ýtir frá sér gömlum textum um sinn. Það er þyngri straumur og persónulegri tónn í þessari bók en hinum fyrri.\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126335570248,"sku":"OSC-17999","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/68288.jpg?v=1754826762","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/atviksor-i-thati-68288-17999","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}