{"product_id":"babbitt-44967-41196","title":"Babbitt # 44967","description":"Babbitt. Skáldsaga eftir Sinclair Lewis. Sigurður Einarsson íslenzkaði.\u003cbr\u003eBabbitt er kaupsýslumaður, sjálfumglaður, góðlyndur, hávær vanaþræll. Hann er loftbelgurinn, sem alltaf dansar ofan á — meðan ekki er á honum stungið. Þennan mann velur Lewis sér\u003cbr\u003etil könnunar og lýsing hans á persónu .\u003cbr\u003eBabbitts er svo lifandi og skýr, að hann\u003cbr\u003everður lesandanum annað og meira en\u003cbr\u003eeinstaklingur, hann verður brot af okkur sjálfum, brot af hverjum manni, sem við höfum kynnzt. Ekki verður það sagt,\u003cbr\u003eað okkur vaxi í augum mikilleikur veru\u003cbr\u003eþeirrar, sein maður nefnist, eftir lesturinn. Sálgreining Lewis er svo næm, að okkur finnst hann skyggn á hvern smádrátt, svo að ekkert falli undan. En þó að okkur finnst fátt um mikilleikann,\u003cbr\u003everður okkur samt sem áður hlýtt til\u003cbr\u003eBabbitts, þrátt fyrir allt og allt.\u003cbr\u003eTungutak og pennaleikni þýðanda\u003cbr\u003ebókarinnar er þjóðkunnugt, og óneitanlega hefir honum viða tekizt prýðilega þýðingin á Babbitt. (Stigandi 2.árg. 1944).","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124835320136,"sku":"OSC-41196","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/44967.jpg?v=1754788566","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/babbitt-44967-41196","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}