{"product_id":"baei-og-17545-18062","title":"Bæði og ... # 17545","description":"Bæði og ... Ljóð eftir Rögnu S. Gunnarsdóttur frá Arnórsstöðum.\u003cbr\u003eRagna S. Gunnarsdóttir var fædd á Arnórsstöðum í Jökuldal í október 1929. Foreldrar hennar voru Benedikta Bergþóra Bergsdóttir húsfreyja og Gunnar Jónsson bóndi á Gilsá. Ragna gekk í farskóla tíu mánuði alls í Jökuldalshreppi. Hún gekk einn vetur í unglingaskóla á Eskifirði, var tvo vetur í Héraðsskólanum á Laugarvatni og sótti eitt sumarnámskeið í Reykjavík. Eftir fertugt fór hún á þrjú framsagnarnámskeið, eitt teikninámsskeið, vatnslitanámskeið, tvö enskunámskeið, tvö skrúðgarðanámskeið og tvö útskurðarnámskeið. Ragna var í Kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar í 14 ár. Hún var ein af stofnendum Átthagasamtaka Héraðsmanna og mætti fyrir Jökuldælinga á fyrsta fund þeirra og var í fjáröflunarnefnd félagsins um árabil. Var frá byrjun í félaginu HanaNú í Kópavogi fyrir fólk sextíu ára og eldra sem stofnað var til undirbúnings ellinnar. Hún starfaði í bókmenntaklúbbi og gönguklúbbi félagsins, ásamt annarri starfsemi þess um árabil. Sjötug gekk Ragna í Félag eldri borgara í Kópavogi og var einn af stofnendum Nafnlausa leikhópsins á vegum þess félags. Hún brá sér í ýmis skemmtihlutverk til þess að fá fólk til að hlæja. Hún starfaði við ýmis verslunar, ræstingar- og verkamannastörf. Má þar nefna hjá Osta- og smjörsölunni, efnalaug, Þjóðleikhúskjallaranum, Frank Michelsen, Þroskaþjálfaskólanum, Kópavogsskóla og vann m.a. sem dagmamma. Einnig átti hún og rak kvöldsölu í Hafnarfirði.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126322725192,"sku":"OSC-18062","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/76113_bf5c234e-b1c8-4b3c-972e-71e3b08ccacc.jpg?v=1754826689","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/baei-og-17545-18062","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}