{"product_id":"baerinn-brennur-sidasta-aftakan-a-slandi-87091-72172","title":"Bærinn brennur. Síðasta aftakan á Íslandi # 87091","description":"Bærinn brennur. Síðasta aftakan á Íslandi. Eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur.\u003cbr\u003eÁrið 1828 myrti Friðrik bóndasonur í Katadal nágranna sinn, bóndann og lækninn Natan Ketilsson á Illugastöðum í Húnavatnssýslu. Ráðskona Natans, Sigríður, og vinnukona hans, Agnes, lögðu á ráðin með Friðriki, eggjuðu og veittu dygga aðstoð. Þremenningarnir brenndu svefnhús Natans til að leyna verknaðinum sem framinn var í auðgunarskyni og hjálpuðust að við að fela þýfið svo að það yrði ekki eldinum að bráð.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBjörn Blöndal sýslumaður blés til dómþinga um málið í héraði. Nákvæmar yfirheyrslur yfir sakborningum og sveitungum þeirra eru hér raktar en þær varpa nýju ljósi á málið og færa lesanda nær raunverulegum vettvangi en þekktar sögur munnmælanna.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eÞórunn Jarla Valdimarsdóttir hefur skrifað tugi bóka, skáldverk og fræðirit, þar á meðal bækurnar Snorri á Húsafelli, Upp á Sigurhæðir – saga Matthíasar Jochumssonar og Skúli fógeti – faðir Reykjavíkur. Hún kann þá list að lýsa upp kima horfinna hátta og opna dyr inn í heima á mörkum forneskju og upplýsingar.","brand":"Bokin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52440429494600,"sku":"OSC-72172","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/87091.jpg?v=1770473013","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/baerinn-brennur-sidasta-aftakan-a-slandi-87091-72172","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}