{"product_id":"bak-vi-auga-51667-46759","title":"Bak við auga # 51667","description":"Bak við auga. Ljóð eftir Önnu S. Snorradóttur.\u003cbr\u003eAnna var fædd 16. októ­ber 1920. For­eldr­ar henn­ar voru Snorri Sig­fús­son, skóla­stjóri og náms­stjóri, og Guðrún Jó­hann­es­dótt­ir, hús­freyja á Flat­eyri og Ak­ur­eyri.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAnna lauk stúd­ents­prófi frá M.A. 1942. Hún stundaði nám í Englandi og í Svíþjóð á ár­un­um 1945-47, m.a. var hún í starfs­námi hjá BBC í London.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAnna var kenn­ari við Barna­skóla Ak­ur­eyr­ar 1942-1945. Hún veitti fræðslu­deild KEA for­stöðu 1948-1949. Hún var bú­sett í Kaup­manna­höfn 1952-1958 og vann við skrif­stofu­störf hjá Flug­fé­lagi Íslands 1952-1954. Lengst starfaði hún hjá Rík­is­út­varp­inu, 1959-1970, og vann aðallega við dag­skrár­gerð fyr­ir börn. Hún hef­ur flutt margs kon­ar út­varps­efni síðan. Anna vann stjórn­un­ar­störf í Sólarfilmu frá 1972 þar til hún lét af störf­um þar vegna ald­urs.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eHún skrifaði reglu­lega grein­ar í blaðið Dag á Ak­ur­eyri (1942-1952), einnig tvö ár í Sam­vinn­una og var í 7 ár í út­gáfu­stjórn Hús­freyj­unn­ar. Hún þýddi nokkr­ar barna­bæk­ur og gaf út sex ljóðabæk­ur.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eAnna gift­ist 1949 Birgi Þór­halls­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra og eig­anda Sólarfilmu. Þau eignuðust þrjú börn, Snorra Sig­fús pí­anó­leik­ara og tón­skáld, Guðrúnu Sig­ríði flautu­leik­ara og Þór­hall fiðluleik­ara og eig­anda Sólarfilmu.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124044693832,"sku":"OSC-46759","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/51667.jpg?v=1754774244","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bak-vi-auga-51667-46759","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}