{"product_id":"bak-vi-hafi-81400-47054","title":"Bak við hafið # 81400","description":"Bak við hafið. Úrval úr ljóðum Jónasar Guðlaugssonar. Hrafn Jökulsson gaf út og ritar formála. - Ég vil höggva mín arfgengu bönd!\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBak við hafið hefur að geyma 40 ljóð Jónasar Guðlaugssonar (1887-1916), sem kvaddi sér hljóðs á öndverðri öldinni sem afar efnilegt skáld. Jónas flutti til Danmerkur liðlega tvítugur og varð eitt hinna ungu, íslensku skálda sem létu að sér kveða í dönskum bókmenntaheimi með eftirminnilegum hætti. Hann varð aðeins 28 ára, en hafði þá gefið ut þrjár ljóðabækur á íslensku og þrjár á dönsku auk annarra skáldverka. Ljóðin í þessari bók orti Jónas þegar hann var um tvítugt; þau eru ofin af undralistrænum næmleik úr heitum tilfinningum, stórum draumum og óbeisluðum löngunum ungs manns. Hrafn Jökulsson ritar inngang um ævi og skáldskap Jónasar.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e(Káputexti)","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51123984302408,"sku":"OSC-47054","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/52087.jpg?v=1754773451","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/bak-vi-hafi-81400-47054","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}