{"product_id":"baldvin-einarsson-og-thjomalastarf-hans-69839-46019","title":"Baldvin Einarsson og þjóðmálastarf hans # 69839","description":"Baldvin Einarsson og þjóðmálastarf hans. Nanna Ólafsdóttir tók saman.\u003cbr\u003eBaldvin Einarsson, lögfræðingur, ritstjóri og náttúrufræðinemi, fæddist á Molastöðum í Fljótum 2.8. 1801. Hann var sonur Einars Guðmundssonar, umboðsmanns á Hraunum i Fljótum, og k.h., Guðrúnar Pétursdóttur frá Skeiði í Svarfaðardal. Frá þeim er kominn fjöldi þekktra verkfræðinga.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBaldvin þótti býsna vinnusamur unglingur, gekk í öll störf á búi foreldra sinna er hann hafði aldur til og var orðinn formaður á hákarlaskipi föður síns er hann var 17 ára. Hann lærði undir skóla hjá séra Jóni Konráðssyni, var í Bessastaðaskóla 1822-25, var skrifari hjá Grími Jónssyndi amtmanni, lauk lagaprófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn 1831 og stundaði nám í náttúrufræði við Fjöllistaháskólann í Höfn.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBaldvin var ritstjóri tímaritsins Ármanns á Alþingi, ásamt Þorgeiri Guðmundssyni, en Baldvin samdi mestan hluta efnisins og komu út fjórir árgangar ritsins. Sú útgáfa er gjarnan talin marka upphaf sjálfstæðisbaráttunnar á 19. öld.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eEftir Baldvin liggja m.a. Ritgerð um birkiskóga viðurhald sem kom út í Kaupmannahöfn 1827 og í íslenskri þýðingu í Reykjavík árið 1848 og Bemærkninger om den gamle islandske Lov Graagaasen en sú ritgerð kom ekki út fyrr en eftir andlát Baldvins, árið 1834.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBaldvin háði ritdeilu við Rasmus Kristian Rask sem spannst af þýðingum C.C. Rafns á Jómsvíkinga og Knytlinga sögum.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eBaldvin giftist danskri konu en afkomendur þeirra búa í Þýskalandi. Baldvin lést 9.2. 1833, af völdum sára er hann hlaut er kviknaði í rekkjuvoðum í Kaupmannahöfn.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51124087325000,"sku":"OSC-46019","price":2900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/62074.jpg?v=1754776430","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/baldvin-einarsson-og-thjomalastarf-hans-69839-46019","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}