{"product_id":"basil-fursti-hyenur-lundunaborgar-65826-9141","title":"Basil fursti. Hýenur Lundúnaborgar # 65826","description":"Ævintýri Basils fursta. Hýenur Lundúnaborgar. Spennusaga eftir Niels Meyn.\u003cbr\u003eBasil fursti birtist fyrst í bók á íslensku árið 1939 hjá Sögusafni heimilanna sem Árni Ólafsson stóð að. Talið er að Páll Sveinsson, barnaskólakennari í Hafnarfirði, hafi íslenskað Basil fursta að mestu. Innihélt bókin sex sögur, bók númer tvö kom út 1940 og þriðja bókin árið 1941 og innihélt fimm sögur. Í beinu framhaldi af þessari útgáfu var farið að gefa út sérhefti með myndskreyttum kápum, í einum lit að jafnaði, og innihélt hvert hefti eina sögu. Fyrsta heftið hét Konuræninginn. Alls voru gefin út 52 hefti frá 1941 og til ársins 1947, að því talið er. Í seinasta heftinu sem kom út í þessari útgáfu, Tvíburasystrunum, gekk Basil fursti, sem var kunnur kvenhatari, í hjónaband og lauk ævintýrum hans að því loknu.\u003cbr\u003eKringum 1960 kom út þriðja útgáfan af Basil fursta, og var um að ræða endurprentun á sömu heftum og voru í bókunum annars vegar og hins vegar nokkrum lausum heftum, alls 23­ hefti. Bláa þokan var fyrsta heftið af þeirri útgáfu og Gulldúfan númer 23. Síðan voru endurprentuð kringum 1970 tvö hefti af Basil fursta í nútímalegri útgáfu og eru þau almennt ekki hátt skrifuð af sönnum Basil fursta aðdáendum.","brand":"Bókin.is","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51126982279496,"sku":"OSC-9141","price":1900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0916\/4029\/9848\/files\/basil_hyenurlundunabor.jpg?v=1754837078","url":"https:\/\/www.bokin.is\/products\/basil-fursti-hyenur-lundunaborgar-65826-9141","provider":"bokin.is","version":"1.0","type":"link"}